ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Íþróttavika Evrópu 23. – 30. september nk.

Íþróttavika Evrópu 23. – 30. september nk.

19/09/17

EWOS-BEACTIVE-visual-blue

Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) verður haldin 23. – 30. september nk. í yfir 30 Evrópulöndum.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur hlotið styrk frá Evrópusambandinu í gegnum Erasmus+ styrkjakerfið til verkefna sem munu tengjast vikunni. Markmiðið með Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Sérstök áhersla er lögð á að höfða til grasrótarinnar og að hvetja Evrópubúa til að sameinast undir slagorðinu #BeActive til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi.

Hægt er að nálgast upplýsingar um tilgang og markmið verkefnisins á beactive.is en verkefnið er líka á Facebook:  https://www.facebook.com/beactiveiceland/

Edit Content
Edit Content
Edit Content