Ferðaglaðir Dreyrafélagar.

Það hefur verið nóg að gera í félagsstarfinu hjá Hestamannafélaginu Dreyra í seinni hluta vetrar/vor og það sem af er sumri. Góð þátttaka og góður félagsandi hefur einkennt viðburði félagsins. Laugardaginn 6. maí var hátíðar-afmælisreiðtúr í tilefni 70 ára afmælis félagsins niður á Akratorg. Reiðtúrinn fór fram í veðurblíðu og tókst vel til. Áð var […]

Fréttir af reiðnámskeiðum hjá Dreyra.

Í vetur/vor hafa verið haldin 4 reiðnámskeið hjá Dreyra. Námskeiðin hafa verið ólík  en  hentað knöpum  af öllum stærðum, og  ólíkum aldri en reynt að koma til móts við þarfir og óskir allra.   Yngsti þátttakandinn var 4 ára og sá elsti 62 ára. Námskeiðshaldið hófst um miðjan mars þegar að reynsluboltinn og stórknapinn Daníel […]

Gæðingakeppni Dreyra -Úrslit

Gæðingakeppni Dreyra var haldin á Æðarodda þann 3. júní s.l. Hér er stólpagæðingurinn Arna frá Skipaskaga sigurvegari B-flokks gæðinga og Sigurður Sigurðarson. Glæsilegasti gæðingur mótsins og einnig besta hryssa mótsins var Arna frá Skipaskaga en hún er í eigu Sigurveigar Stefánsdóttur og Jóns Árnasonar. Knapi mótsins var  Ólafur Guðmundsson. Hér eru úrslit keppninnar.: Barnaflokkur 1. […]

Firmakeppni Dreyra – Úrslit

Hin árlega firmakeppni Dreyra var haldin að venju þann 1. maí s.l. á 70 ára afmælisdegi félagsins.  Það blés heldur þunglega og rigndi hressilega um morguninn, nokkurs konar fræsingur eins einhver myndi kalla það. En eftir að mótið var sett kl 14 hélst veðrið alveg þokkalegt þrátt fyrir einstaka vindhviður sem feyktu upp jakkalöfum og […]

Firmakeppni Dreyra 1. maí

Firmakeppni Dreyra verður mánudaginn 1. maí n.k, 70 ára afmælisdagur,  á Æðarodda og hefst kl: 14 með hópreið. Keppt verður í pollaflokki (teymt), barnaflokki, unglingaflokki, karla- og kvennaflokki. Skráning í félagsheimilinu mill 12:30 og 13:30. Að venju verður okkar góða kaffi- og kökuhlaðborð að keppni lokinni ásamt verðlaunaafhendingu. Önnur atriði: Mæting í hópreið er kl […]

Reiðnámskeið fyrir yngstu Dreyrafélagana.

Reiðnámskeið fyrir krakka í Dreyra. Reiðnámskeið fyrir börn (4 ára? til 12 ára?) verður haldið í apríl.   Námskeiðið er ætlað fyrir börn  sem eru óvön/óörugg og  vilja auka öryggi sitt á hestbaki og bæta/læra stjórnun fararskjótans. Gert er ráð fyrir 5 skiptum og fyrsti tíminn verður síðdegis þann 19. apríl.  Kennari verður Helena Bergström […]

Fundur 5. apríl vegna Löngufjöruferðar í júní.

Dreyrafélagar: FERÐAR-FUNDUR verður haldinn miðvikudaginn 5. apríl kl.20 í félagsheimilinu vegna fjölskylduferðar hestamannafélagsins á Löngufjörur 9.-11.júní. Kostnaður er um Kr. 10.000 fyrir mann og hest (gisting á Snorrastöðum og girðingargjald) Kynningarfundur var haldinn 28. mars og ætlunin er á fundinum næsta miðvikudag (5.apríl) að þeir sem ætla sér að fara mæti og ráði ráðum sínum […]

Daníel Jónsson aftur með námskeið – 8. apríl n.k.

Daníel Jónsson mun koma aftur og halda námskeið í reiðhöllinni á Litlu Fellsöxl  laugardaginn  8. apríl n.k. Þau sem voru á námskeiðinu fyrir  2 vikum hafa forgang en annars eru ALLIR velkomnir sem hafa áhuga á að bæta gæðinginn sinn.  Takmarkaður fjöldi kemst að. Einkatími – verð 8500. Skráning berist á dreyri@gmail.com fyrir miðvikudaginn 5. […]

Dreyrafélagar gerðu sér glaðan dag.

Laugardaginn 11. mars s.l héldu Dreyrafélagar  sína árlegu Góugleði í Æðarodda. Mynd: Riðið á móti sól á grænu ljósi á Stillholtinu Í tilfefni dagsins og til að sýna sig og sjá aðra brugðu nokkrir félagar sér í kaupsstaðinn til hátíðarbrigða. Áhugaljósmyndarinn Guðmundur Bjarki Halldórsson varð á vegi hestamanna og tók af þeim nokkrar myndir eins […]

Dreyrakrakkar á námskeiði í Skáney, Reykholtsdal

Í síðustu viku hófu 6 krakkar  úr Dreyra,  á aldrinum 12 til 14 ára,  nám í knapamerki I. Námskeiðið tekur 10 skipti  og er haldið  í frábærri aðstöðu í Skáney í Reykholtsdal og er bæði bóklegt og verklegt.  Reiðkennarar eru ábúendur á Skáney, þau Randy Holaker og Haukur Bjarnason sem bæði eru menntaðir reiðkennarar.  Þau bjóða […]