ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Fundur 5. apríl vegna Löngufjöruferðar í júní.

Fundur 5. apríl vegna Löngufjöruferðar í júní.

03/04/17

#2D2D33

Dreyrafélagar:

FERÐAR-FUNDUR verður haldinn miðvikudaginn 5. apríl kl.20 í félagsheimilinu vegna fjölskylduferðar hestamannafélagsins á Löngufjörur 9.-11.júní.

Kostnaður er um Kr. 10.000 fyrir mann og hest (gisting á Snorrastöðum og girðingargjald)

Kynningarfundur var haldinn 28. mars og ætlunin er á fundinum næsta miðvikudag (5.apríl) að þeir sem ætla sér að fara mæti og ráði ráðum sínum varðandi t.d. matarmál, flutninga á hrossum og annað.

Nú þegar er kominn góður hópur af fólki sem ætlar í þessa ferð, nefndin hvetur fólk til að skella sér með á fjörurnar dásamlegu.

Myndaniðurstaða fyrir löngufjörur á snæfellsnesi

Hægt er að skrá sig í ferðina á  groa.thorsteinsdottir@hve.is

Kveðja Ferðanefndin

 

Edit Content
Edit Content
Edit Content