Íþróttamaður Akraness 2023 Tilnefningar
Þann 6. janúar næstkomandi verður tilkynnt um val á Íþróttamanni Akraness árið 2023. Kjör Íþróttamanns Akraness verður áfram með sama sniði og seinast en streymt verður í gegnum ÍATV frá Garðavöllum í kjölfar flugeldasýningarinnar. Opnað hefur verið fyrir kosningu HÉR í þjónustugátt Akraneskaupstaðar og er kosningin opin frá 28. desember til og með 4. janúar. […]
Skráning í keilu í Nóra
Nú er hægt að skrá í keilu í Nóra. Æfingatíma er hægt að sjá hér Nýir iðkendur eru hvattið til að koma og prufa þessa skemmtilegu íþrótt.
Íslandsmeistari öldunga í keilu
Guðmundur Sigurðsson varð um helgina Íslandsmeistari öldunga í keilu. Keppnin stóð yfir 2 helgar í röð og náði Gummi að halda sér í forystu allan tímann. Alls voru spilaðir 12 leikir á 4 keppnisdögum og lokadaginn voru úrslitin spiluð strax á eftir keppni. Næst á dagskrá hjá Gummar er svo Evrópumót öldunga sem haldið verður […]
Matthías sett fjögur Íslandsmet
Þessa dagana fer fram Íslandsmót einstaklinga með forgjöf í Egilshöll. Fjögur íslandsmet voru sett í mótinu í dag. Matthías Leó Sigurðsson ÍA spilaði 4 leiki í dag og setti íslandsmet í einum, tveimur, þremur og fjórum leikjum. Leikir Matthíasar í dag voru 132, 196, 142 og 136. Íslandsmetin eru sett í 5. flokki en […]
Íslandsmót unglinga í keilu
Íslandsmót unglinga fór fram helgina 4. og 5. mars og mættu til leiks 37 ungmenni frá 4 félögum: ÍR, KFR, KFA og Þór. Það er skemmst frá því að segja að árangur Skagamanna var frábær og varð Arnar Daði Sigurðsson tvöfaldur Íslandsmeistari, í öðrum flokki og opnum flokki, Róbert Leó Gíslason varð Íslandsmeistari í 4.flokki pilta, […]
ÍA meistarar meistaranna í keilu
Meistarakeppni KLÍ fór fram í Keiluhöllinni Egilshöll miðvikudaginn 11. september sl. Þar gerðu Skagamenn sér lítið fyrir og sigruðu bikarmeistara ÍR-KLS. Lið ÍA skipuðu þeir Sigurður Þorsteinn Guðmundsson, Magnús Sigurjón Guðmundsson, Aron Fannar Benteinsson og Skúli Freyr Sigurðsson. Skúli Freyr Spilaði best hann spilaði 667 í þremur leikjum og átti einnig hæsta einstakan leik 259 […]
ÍA Íslandsmeistarar félaga í keilu
Fjórða og síðasta umferð Íslandsmóts félaga fór fram í Keiluhöllinni Öskjuhlíð í kvöld, fimmtudaginn 2. maí. Eftir hörkuspennandi keppni til 7. og síðasta leiks var það ÍA sem stóð uppi sem sigurvegari í keppninni og tryggði sér titilinn Íslandsmeistari félaga í opnum flokki árið 2013. Flestum að óvörum þá voru það kvennaliðin sem voru öruggar […]
Jólamót Keilufélags Akraness
Jólamót Keilufélags Akraness 2012 var haldið 29.des. í Keilusal Akraness. Alls kepptu 27 manns og lögðu nokkrir það á sig að koma úr Reykjavík þrátt fyrir vonsku veður. Keppt var með og án forgjafar og voru veitt verðlaun fyrir hæsta leik með og án forgjafar, hæstu seríu með og án forgjafar og flestar fellur í […]
Jólamót Keilufélags Akraness
Jólamót Keilufélags Akraness fer fram Laugardaginn 29 desember sjá auglýsingu.
Reykjavíkurmót einstaklinga í keilu
Dagana 8. Og 9. Sept. var haldið Reykjavíkurmót einstaklinga í keilu í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð. Nokkrir skagamenn skráðu sig í mótið og er skemmst frá því að segja að í 1.sæti var Kristján Arne Þórðarson og í 2. Sæti var Þorleifur Jón Hreiðarsson ,báðir í Keilufélagi Akraness. Reykjavíkurmeistari í keilu var Hafþór Harðarson ÍR en […]