Meistaramót GL 2017: skráningu lýkur kl. 12 mánudaginn 3.júlí

Meistaramót Golfklúbbsins Leynis verður haldið dagana 5. til 8. júlí 2017. Skráning er hafinn á www.golf.is og lýkur mánudaginn 3. júlí n.k. kl. 12:00.

Lokahóf verður haldið laugardagskvöldið 8. júlí að loknum síðasta keppnisdegi og mun verða auglýst nánar síðar. Félagsmenn eru hvattir til að skrá sig tímanlega en það auðveldar allan undirbúning fyrir stærsta mót sumarsins.

Landsbankamótaröðin: úrslit

Landsbankamótaröðinni lauk síðastliðinn miðvikudag með úrslitakeppni 20 efstu kylfinga en mótaröðin var 6 hringir og töldu 3 bestu til að komast inn í úrslitakeppnina.

Úrslitakeppni
Punktakeppni með forgjöf

Karlar
1.sæti Vilhjálmur E Birgisson, 38 punktar
2.sæti Ingimar Elfar Ágústsson, 37 punktar (fleiri punktar á seinni níu holum)
3.sæti Lárus Hjaltested, 37 punktar

Konur
1.sæti Guðrún Kristín Guðmundsdóttir, 24 punktar
2.sæti Ingunn Þóra Ríkharðsdóttir, 20 punktar

Úrslit úr hverju og einu móti
17.maí, Karl Ívar Alfreðsson, 35 punktar (fleiri punktar á síðustu 3 holum)
24.maí, Karl Ívar Alfreðsson, 40 punktar
31.maí, Þórður Emil Ólafsson, 41 punktur
7.júní, Hannes Marinó Ellertsson, 40 punktar
14.júní, Gunnar Davíð Einarsson, 42 punktar
21.júní, Jón Ármann Einarsson, 37 punktar

Golfklúbburinn Leynir óskar vinningshöfum til hamingju og þakkar kylfingum fyrir góða þátttöku og stuðning við starf klúbbsins sem og Landsbankanum fyrir góðan stuðning við mótið. Vinningshafar geta sótt vinninga á skrifstofu GL.

Opna Guinness mótið: helstu úrslit

Opna Guinness mótið var haldið á Garðavelli laugardaginn 1. júlí í blíðskaparveðri og við frábærar vallaraðstæður en um 140 kylfingar tóku þátt.

Helstu úrslit voru eftirfarandi:
1.sæti, jr (Jóhann Þór Sigurðsson/Reynir Sigurbjörnsson) GL, 60 högg nettó
2.sæti, Ástríkur og Steinríkur (Ingi Þór Ólafsson/Lárus Gunnarsson) NK, 61 högg nettó
3.sæti, 8. Akurnesingurinn (Loftur Ingi Sveinsson/Reynir Þorsteinsson) GR/GL, 62 högg nettó

Nándarverðlaun á par 3 holum
3.hola, Jón Sveinberg Birgisson GOS, 1.03m
8.hola, Hólmar Árnason GG, 2.83m
14.hola, Einar Bjarni Helgason GM, 89cm
18.hola, Þorvaldur Freyr Friðriksson GR, 71cm

Frekari úrslit má finna hér

Golfklúbburinn Leynir óskar vinningshöfum til hamingju og þakkar kylfingum fyrir góða þátttöku og stuðning við starf klúbbsins sem og Ölgerðinni og Icelandair Hótel Reykjavík Marina fyrir góðan stuðning við mótið.
Vinningshafar geta sótt vinninga á skrifstofu GL.

Opnu Norðuráls mótin: helstu úrslit

Opnu Norðurálsmótin fóru fram á Garðavelli laugardaginn 24.júní.

Opna Texas Scramble golfmót Norðuráls var ræst frá kl. 13 til 14 með þátttöku yfir 70 kylfinga. Vallaraðstæður voru góðar en mikill vindur lét þó kylfinga hafa fyrir hlutunum.

Helstu úrslit voru eftirfarandi
1.sæti Morgunhanar, Emil Kristmann Sævarsson/Andri Geir Alexandersson, 64 högg nettó
2.sæti Iðnaðarmennirnir, Ragnhildur Sigurðardóttir/Jón Andri Finnsson, 65 högg nettó (jafnt á seinni níu, jafnt á síðustu sex, jafnt á síðustu þrem, betra brúttó skór)
3.sæti Hásetar, Heiðar Helguson/Guðlaugur Rafnsson, 65 högg nettó

Nándarmælingar á par 3 holum
3.hola Brynjar Jóhannesson GR, 4.92m
8.hola Hermann Geir Þórsson GJÓ, 1.94m
14.hola Björn Viktor Viktorsson GL, 1.49m
18.hola Ragnhildur Sigurðardóttir GR, 3.78m

Frekari úrslit má finna hér

Opna miðnæturmót Norðuráls var ræst kl. 20 af öllum teigum samtímis með þátttöku um 45 kylfinga. Vallaraðstæður voru enn betri en í Texas mótinu sem fram fór fyrr um daginn en gott og bjart veður lék við kylfinga sem spiluðu fram yfir miðnætti.

Helstu úrslit voru eftirfarandi
Punktakeppni með forgjöf 0-10,1
1.sæti Heiðar Davíð Bragason GHD, 34 punktar (betri á seinni níu)
2.sæti Pétur Vilbergur Georgsson GVG, 34 punktar (betri á seinni níu)
3.sæti Axel Fannar Elvarsson GL, 34 punktar

Punktakeppni með forgjöf 10,2-24/28
1.sæti Kristinn Jóhann Hjartarson GL, 35 punktar (betri á seinni níu)
2.sæti Hreiðar Henning Guðmundsson GL, 35 punktar
3.sæti Lárus Hjaltested GL, 34 punktar

Nándarmælingar á par 3 holum
3.hola Pétur Vilbergur Georgsson GVG, 1.52m
8.hola Rafn Jóhannesson GM, 2.93m
14.hola Kristinn Jóhann Hjartarson GL, 3.73m
18.hola Júlíus Tryggvason GA, 2.26m

Golfklúbburinn Leynir óskar vinningshöfum til hamingju og þakkar kylfingum fyrir góða þátttöku og stuðning við starf klúbbsins sem og Norðurál fyrir góðan stuðning við mótið.
Vinningshafar geta sótt vinninga á skrifstofu GL á mánudaginn 25.júní.

Stelpurnar töpuðu gegn Þrótti R

Stelpurnar okkar í meistaraflokki kvenna voru frekar óheppnar í gærkvöldi þegar þær töpuðu 3-0 fyrir Þrótti R á Eimskipsvellinum í