Hallgrímur Rögnvaldsson stigameistari GL 2017
Stigameistari GL 2017 er Hallgrímur Rögnvaldsson en þetta er annað árið sem keppt er um þennan titil. Hallgrímur fékk flest stig úr miðvikudagsmótum og meistaramóti Leynis. Golfklúbburinn Leynir óskari Hallgrími til hamingju með árangurinn.
Á meðfylgjandi mynd má sjá Hallgrím þegar hann tók við farandbikar og verðlaunum sem Stigameistari GL 2017.
Lokaleikur knattspyrnusumarsins 2017
Á morgun, laugardaginn 30. september, fer fram lokaumferð Pepsideildar karla 2017. Okkar strákar taka þá á móti Víkingi Ó hér
Lokahóf yngri flokka 2017
Lokahóf yngri flokka ÍA (3.fl.- 7.fl.) verður haldið í Akraneshöllinni laugardaginn 30. september kl. 12:30. Dagskráin verður með svipuðu sniði og í
Frístundamiðstöð – staða verkefnis 27. september
Nýlega voru samningar undirritaðir af fulltrúum Leynis og Akraneskaupstaðar um nýja frístundamiðstöð við Garðavöll.
Ný frístundamiðstöð mun án efa gjörbreyta öllu starfi Leynis á komandi árum. Stærð húsnæðis er um 1000m2 og skiptist í rúmlega 300m2 kjallara með inniæfingaaðstöðu og 700m2 jarðhæð með allt að 200 sæta veislusal, búningsaðstöðu, skrifstofum, fundarherbergi og afgreiðslu.
Húsnæðið mun nýtast Leyni allt árið um kring og einnig munu aðildarfélög ÍA og Akraneskaupstaður geta nýtt húsnæðið í samráði við Leyni.
Síðastliðna mánuði hefur verið unnið að verkfræðihönnun og öðru er snýr að hönnun hússins. Útboð hafa nú þegar farið fram á jarðvinnu og forsteyptu burðarvirki hússins og komu ágætis tilboð í þessa verkþætti. Á næstu dögum verður frágangur utan- og innanhús boðin út eftir fagsviðum og er gert ráð fyrir að þegar tilboð liggja fyrir um eða eftir miðjan október verði fljótlega teknar ákvarðanir með frekari framgang á framkvæmd frístundamiðstöðvarinnar.
Tímaáætlanir á framkvæmdinni hafa lítillega breyst frá upphaflegum áætlunum og er nú gert ráð fyrir að hefja framkvæmdir í nóvember/desember 2017 að öllu óbreyttu.
Frekari upplýsingar um framkvæmdina og verkefnið gefur framkvæmdastjóri Leynis ef óskað er eftir.
Arnar Már Guðjónsson semur til ársloka 2019 við Skagamenn
Arnar Már Guðjónsson miðjumaður hefur endurnýjað samningi sinni við Knattspyrnufélag ÍA til næstu 2ja ára og gildir hann út 2019.
Fyrirtækjamót GL – Ný dagsetning 29.september
Fyrirtækjamót Leynis verður haldið föstudaginn 29. september 2017 á Garðavelli þar sem ræst verður út af öllum teigum samtímis og stundvíslega kl. 13:00.
Leikfyrirkomulagið er “Betri boltinn og tveir saman liði”. Frábær verðlaun fyrir 1.-3.sætið og nándarmælingar á par 3 holum.
Skráning á leynir@leynir.is
Leynisfélagar, stöndum saman og hjálpið okkur að safna fyrirtækjum í mótið.
Skagamenn gerðu markalaust jafntefli við Víking R
Meistaraflokkur karla mætti Víking R í 21. umferð Íslandsmótsins sem fram fór við erfiðar aðstæður á Víkingsvellinum í Fossvoginum þar
Næstsíðasti leikurinn í Pepsideildinni – í bili
Það hefur sjálfsagt ekki farið framhjá mörgu en með sigri Fjölnis á FH síðastliðið fimmtudagskvöld var það endanlega staðfest að
Nýliðaskjöldurinn 2017 – úrslit
Nýliðaskjöldurinn fór fram þriðjudaginn 19.september á Garðavelli en um var að ræða 9 holu mót fyrir forgjafarhærri kylfinga úr röðum Leynis.
Helstu úrslit voru eftirfarandi:
Punktakeppni með forgjöf
1.sæti Reynir Gunnarsson, 19 punktar (betri á síðustu 3 holum)
2.sæti Klara Kristvinsdóttir, 19 punktar
3.sæti Ólafur Guðmundsson, 15 punktar (betri á síðustu 6 holum)
Höggleikur án forgjafar (besta skor)
1.sæti Kári Kristvinsson, 50 högg
Nándarverðlaun á par 3 holum
3.hola Þórir Björgvinsson, 3.73m
8.hola Jóhanna Ólöf Reynisdóttir, 63 cm
Golfklúbburinn Leynir óskar vinningshöfum til hamingju og þakkar kylfingum fyrir þátttökuna. Vinningshafar geta sótt vinninga á skrifstofu GL.
Fyrirtækjamót GL 2017 – FRESTAÐ
Fyrirtækjamót Leynis sem halda átti n.k. föstudag 22. september 2017 á Garðavelli hefur verið frestað af óviðráðanlegum ástæðum.
Áætlanir mótanefndar gera ráð fyrir að mótið verði sett á dagskrá í næstu viku og verða sendar upplýsingar við fyrsta tækifæri um nýja dagsetningu.
Við hvetjum Leynisfélaga til að hjálpa okkur að safna fyrirtækjum í mótið og styðja við gott starf klúbbsins.