KDA og KFIA gera 2 ára samning

Í kvöld undirrituðu dómarafélagið og knattspyrnufélag ÍA undir tveggja ára samning. Sem felur í sér samstarf um dómgæslu á heimaleikjum

Garðavöllur lokar formlega

Garðavöllur hefur lokað inn á sumarflatir og teiga frá og með 2.nóvember 2017. Vetraflatir og teigar hafa verið útbúnir á seinni níu holum vallarins. Völlurinn verður áfram opin fyrir kylfinga meðan veðurfar leyfir og mun tilkynning verða send út síðar þegar og ef vellinum verður lokað í vetur.
Vinsamleg tilmæli vallarstjóra er að gæta að umgengni nú þegar haustið er skollið á og tíðarfarið fjölbreytilegt. Bannað er að spila Garðavöll ef morgunfrost myndast fyrst á morgnana. Mikilvægt er að sólin fái tækifæri til að koma upp en flatir og önnur svæði vallarins eru sérstaklega viðkvæm við slíkar aðstæður. Kylfingar eru minntir á að ganga vel um völlinn og setja torfusnepla aftur í kylfuför en góð umgengi lýsir innri manni.
Golfklúbburinn Leynir þakkar öllum kylfingum fyrir heimsóknir á Garðavöll í sumar og hlakkar til sjá sem flesta kylfinga sumarið 2018.

Lokamóti opnu haustmótaraðar GrasTec FRESTAÐ

Síðasta mótinu í opnu haustmótaröð GrasTec hefur verið frestað um óákveðin tíma en mótið var áætlað n.k. laugardag 4. nóvember. Veðurspár og veðurútlit er þannig að næturfrost og kuldi sækir að okkur næstu daga.
Frekari upplýsingar um mótið og nýja dagsetningu verðar gefnar út við fyrsta tækifæri.

Sigrún Eva á landsliðsæfingar

Helgina 10.-12. nóvember næstkomandi fara fram landsliðsæfingar U16 ára kvenna. Frá ÍA hefur Sigrún Eva Sigurðardóttir verið valin til þátttöku

Opna haustmót GrasTec nr.3 af 4 – úrslit

Mót nr.3 í opnu GrasTec haustmótaröðinni fór fram á Garðavelli laugardaginn 28. október við góðar vallaraðstæður og gott veður. Yfir 30 keppendur þátt í mótinu en leikinn var 12 holu punktakeppni að vanda.
Úrslit urðu þessi:
1.Kristvin Bjarnason GL á 25 punktum – Gisting fyrir tvo með morgunverði á Húsfell Resort Hotel 2.Reynir Þorsteinsson GL á 24 punktum (betri á síðustu 6 holum) – Gjafabréf hjá Galito restaurant
3.Bára Valdís Ármannsdóttir GL á 24 punktum – Gjafabréf Galito restaurant
Næst holu á 14. braut: Jón Ármann Einarsson GL, 72 cm.
Næst holu á 18. braut: Bára Valdís Ármannsdóttir GL, 160 cm.
Vinninga gáfu Íslandsbanki og 19.holan.
Vinningshafar geta sótt verðlaun á skrifstofu GL.
Næsta mót fer fram laugardaginn 4. nóvember og er það fjórða og síðasta mótið í þessari haustmótaröð GrasTec. Mótanefnd GL hvetur félagsmenn GL til að taka þátt í mótaröðinni og við skulum bjóða kylfinga úr öðrum golfklúbbum velkomna.
Munið útdráttarverðlaun allra keppenda úr öllum mótum í lok mótaraðarinnar, GJAFABRÉF MEÐ GB FERÐUM AÐ ANDVIRÐI 50.000 KR.