Framhaldsaðalfundur Dreyra, 28. janúar 2020
Dreyrafélagar! Framhaldsaðalfundur Dreyra verður þriðjudaginn 28. janúar kl 20 í félagsheimilinu á Æðarodda. Á dagskrá er m.a ársreikningur 2019, árgjald 2020, mönnun i nefndir, drög að starfsáætlun 2020 og önnur mál. Sjáumst á þriðjudagskvöldið 🙂
Aðalfundur Dreyra 27. nóvember í Æðarodda.
Dreyrafélagar! Aðalfundur Hestamannafélagsins Dreyra verður miðvikudaginn 27. nóvember 2019 í Æðarodda kl. 20. Venjuleg aðalfundarstörf skv. gildandi lögum félagsins. Kosið verður til nýrrar stjórnar, m.a formaður og varaformaður, og kosið í starfsnefndir félagsins. Sjáumst miðvikudaginn 27. nóvember í Æðarodda. Stjórn Dreyra.
Firmakeppni Dreyra úrslit – Skóflustunga að reiðhöll
Firmakeppni Dreyra var að venju haldin þann 1. maí. Það var sannkölluð vorblíða og sólin skein í heiði. Þetta var sérlega góður dagur því að fyrir utan frábæra þátttöku í keppni dagsins var tekin skóflustunga að reiðhöll Dreyra. Dómarar dagins voru þau Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri Hvalfjarðarsveiar og Hörður Helgason frá stjórn ÍA. Þau stóðu […]
Firmakeppni Dreyra 1. maí
Hin árlega Firmakeppni hestamannafélagsins Dreyra verður haldin á Æðarodda þann 1. maí n.k. Keppt verður í pollaflokki (teymt), barnaflokki, unglingaflokki, karla- og kvennaflokki. Skráning í félagsheimilinu mill 12:30 og 13:30. Kaffi og kökuhlaðborð að keppni lokinni ásamt verðlaunaafhendingu. Við munum einnig taka fyrstu skóflustunguna að nýrri reiðskemmu.
Járninganámskeið 16. – 17. mars 2019
Járninganámskeið á Æðarodda 16. – 17. mars 2019. Kennari á námskeiðinu verður Gunnar Halldórsson sem starfar sem járningarmaður á suðvesturhorninu, kennir járningar við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri og varð Íslandsmeistari í járningum árin 2013, 2014 og 2016. Kennd verður almenn hófhirðing, tálgun og járningar. Farið verður yfir áhrif járningar á hreyfigetu hestsins og fjallað um gerð […]
Framhaldsaðalfundur Dreyra 15. febrúar 2019.
Dreyrafélagar. Framhaldsaðalfundurinn verður föstudagskvöldið 15. febrúar n.k kl 20 í félagsheimilinu. Ársreikningar 2018 lagðir fram. Drög að starfsáætlun kynnt. Stjórn Dreyra.
Aðalfundur Dreyra 15. nóvember 2018, kl. 20, Æðaroddi.
Aðalfundur Dreyra verður haldinn fimmtudaginn 15. nóvember n.k. kl 20 í félagsheimilinu Odda á Æðarodda. Dagskrá fundarins verður samkvæmt lögum félagsins, sjá 7. grein. Sjá nánar hér hægra megin á síðunni. (Lög Dreyra.) Einnig verða á fundinum kynntar nokkrar stefnur og aðgerðaráætlanir ÍA um t.d siðareglur aðildarfélaga ÍA, stefna gegn einelti og áreitni og hvernig […]
Stefnumótun fyrir starfið – Vinnufundur 27. október.
-Æðaroddi, félagsheimili, laugardagsmorgun 27. október frá kl. 10 til 13.- Stjórn Hestamannafélagsins Dreyra boðar til vinnufundar vegna stefnumótunar fyrir félagið okkar. Allir félagsmenn Dreyra sem áhuga hafa á starfinu í nútíð og framtíð ættu að mæta. Góð stefna félagsins tengir saman hlutverk, innra skipulag og kröfur ytra umhverfis. Stefnumótun er langtímaáætlun með það að leiðarljósi […]
Norðurálsmót Dreyra 18. og 19. ágúst.
Norðurálsmót Dreyra (opið íþróttamót) verður haldið 18.-19. ágúst 2018 á Æðarodda, Akranesi og er jafnframt bikarmót Vesturlands. En í því felst að Vestlendingar eru sérstaklega velkomnir en nú hefur verið ákveðið að halda þessi mót sameiginlega og munu 3 efstu keppendur í hverri grein, úr hverju Vesturlandsfélagi safna stigum sem telur til stiga í keppinni […]
Jakob Svavar tvöfaldur Íslandsmeistari.
Íslandsmótið í hestaíþróttum fór fram í Reykjavík um síðustu helgi. Íslandsmeistarar 2018 í tölti T1 urðu Jakob Svavar Sigurðsson á Júlíu frá Hamarsey með glæsieinkunnina 9.39. Jakob og Júlía eru einnig samanlagðir fjórgangssigurvegarar árið 2018. Hér má sjá nánari fréttir af úrslitum. Íslandsmót í hestaíþróttum úrslit sunndagur 2018