Leynir auglýsir eftir golfkennara

Golfklúbburinn Leynir auglýsir eftir golfkennara sem mun vinna með íþróttastjóra í skipulagningu og utanumhaldi á íþróttastarfi GL.
Umsóknum skal fylgja greinargóð ferilskrá umsækjenda. Senda skal umsóknir á netfangið biggi@leynir.is, merkt golfkennari…

Kynningarfundur Æskulýðsnefndar Dreyra.

Æskulýðsnefnd Dreyra verður með kynningarfund á dagskrá vetrarins á fimmtudaginn 25. janúar n.k.  Fundurinn verður frá kl. 20 til 21 í félagsheimilinu Æðarodda. Við hvetjum alla FORELDRA , BÖRN ,UNGLINGA OG UNGMENNI til þess að mæta   Við munum fara yfir vetrarstarfið og ræðum saman um hvað er hægt að gera skemmtilegt og gagnlegt á […]

Lífshlaupið 2018 hefst 31. janúar

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum embættis landlæknis um hreyfingu hvort sem er í frítíma, vinnu, skóla eða við val á ferðamáta. Í ráðleggingunum segir að börn og unglingar ættu að hreyfa sig í minnst […]

Minningasjóður Arnars Dórs fer vel af stað

Rúmlega tvær milljónir og eitthundrað þúsund krónur söfnuðust í minningarsjóð Arnars Dórs í átaki sem Þórður Már Gylfason og fyrirtæki hans, Sansa, kom af stað í samvinnu við Team ’79 og ÍA. Skagamenn tóku gríðarlega vel í framtakið og náðu að safna þessari upphæð á rúmum tveimur vikum. Söfnuninni er þó ekki hætt og verður […]

Framkvæmdir ganga vel og skóflustunga föstudaginn 19. jan 2018

Framkvæmdir við nýja frístundamiðstöð ganga vel og niðurrif bygginga að ljúka. Næsti verkþáttur er að hefja jarðvinnu og gröft fyrir bygginguna sem áætlað er að hefjist mánudaginn 22. janúar n.k.
Föstudaginn 19. janúar kl. 15 er á dagskrá að taka form…

Vel heppnuð skóflustunga að nýrri frístundamiðstöð

Fyrsta skóflustungan var tekin að nýrri frístundamiðstöð við Garðavöll á Akranesi föstudaginn 19. janúar, að viðstöddu fjölmenni.
Golfklúbburinn Leynir og Akraneskaupstaður standa að framkvæmdinni og á meðfylgjandi mynd má sjá Sævar Freyr Þráinsson bæ…

Fyrsta skóflustungan tekin að nýrri frístundamiðstöð

Fyrsta skóflustungan var tekin að nýrri frístundamiðstöð við Garðavöll á Akranesi í dag 19. janúar, að viðstöddu fjölmenni. Golfklúbburinn Leynir og Akraneskaupstaður standa að framkvæmdinni en ný frístundamiðstöð mun hýsa félagsstarf Leynis og aðra frístundastarfsemi á vegum ÍA og Akraneskaupstaðar. Nýja frístundamiðstöðin verður rúmlega 1000 fermetrar að flatarmáli og skiptist í 700 fermetra jarðhæð og […]