Frábær þátttaka í Álmanninum

Það var frábær þátttaka í Álmanninum 2017. Fimm lið, 8 konur og 18 karlar hófu keppni við góðar aðstæður á Akranesi þann 28. júní sl.. Í liðakeppninni var það liðið Swagatron sem sigraði eftir milkinn endasprett í sjónum. Sóllrún Sigþórsdóttir varði titil sinn frá 2015 í kvennaflokki og í karlaflokki sigraði Ingvar Hjartarson, bæði voru […]

Opnu Norðuráls mótin: helstu úrslit

Opnu Norðurálsmótin fóru fram á Garðavelli laugardaginn 24.júní.

Opna Texas Scramble golfmót Norðuráls var ræst frá kl. 13 til 14 með þátttöku yfir 70 kylfinga. Vallaraðstæður voru góðar en mikill vindur lét þó kylfinga hafa fyrir hlutunum.

Helstu úrslit voru eftirfarandi
1.sæti Morgunhanar, Emil Kristmann Sævarsson/Andri Geir Alexandersson, 64 högg nettó
2.sæti Iðnaðarmennirnir, Ragnhildur Sigurðardóttir/Jón Andri Finnsson, 65 högg nettó (jafnt á seinni níu, jafnt á síðustu sex, jafnt á síðustu þrem, betra brúttó skór)
3.sæti Hásetar, Heiðar Helguson/Guðlaugur Rafnsson, 65 högg nettó

Nándarmælingar á par 3 holum
3.hola Brynjar Jóhannesson GR, 4.92m
8.hola Hermann Geir Þórsson GJÓ, 1.94m
14.hola Björn Viktor Viktorsson GL, 1.49m
18.hola Ragnhildur Sigurðardóttir GR, 3.78m

Frekari úrslit má finna hér

Opna miðnæturmót Norðuráls var ræst kl. 20 af öllum teigum samtímis með þátttöku um 45 kylfinga. Vallaraðstæður voru enn betri en í Texas mótinu sem fram fór fyrr um daginn en gott og bjart veður lék við kylfinga sem spiluðu fram yfir miðnætti.

Helstu úrslit voru eftirfarandi
Punktakeppni með forgjöf 0-10,1
1.sæti Heiðar Davíð Bragason GHD, 34 punktar (betri á seinni níu)
2.sæti Pétur Vilbergur Georgsson GVG, 34 punktar (betri á seinni níu)
3.sæti Axel Fannar Elvarsson GL, 34 punktar

Punktakeppni með forgjöf 10,2-24/28
1.sæti Kristinn Jóhann Hjartarson GL, 35 punktar (betri á seinni níu)
2.sæti Hreiðar Henning Guðmundsson GL, 35 punktar
3.sæti Lárus Hjaltested GL, 34 punktar

Nándarmælingar á par 3 holum
3.hola Pétur Vilbergur Georgsson GVG, 1.52m
8.hola Rafn Jóhannesson GM, 2.93m
14.hola Kristinn Jóhann Hjartarson GL, 3.73m
18.hola Júlíus Tryggvason GA, 2.26m

Golfklúbburinn Leynir óskar vinningshöfum til hamingju og þakkar kylfingum fyrir góða þátttöku og stuðning við starf klúbbsins sem og Norðurál fyrir góðan stuðning við mótið.
Vinningshafar geta sótt vinninga á skrifstofu GL á mánudaginn 25.júní.

Fjórðungsmót Vesturlands 2017 í Borgarnesi.

Fjórðungsmót Vesturlands verður haldið í Borgarnesi þann 28. júní til 2. júlí n.k. Mótið er sem fyrr haldið af Vesturlandsfélögunum 5, þ.e Dreyra, Faxa í Borgarfirði, Skugga í Borgarnesi, Snæfellingi á Snæfellsnesi og Glað í Dalasýslu. Auk þess er hestamannafélögum á Norð-Vesturlandi, þ.e frá Vestfjörðum, Húnavatnssýslum og Skagafirði  boðin þátttaka í keppni og kynbótasýningum. Mótshaldarar […]

Ferðaglaðir Dreyrafélagar.

Það hefur verið nóg að gera í félagsstarfinu hjá Hestamannafélaginu Dreyra í seinni hluta vetrar/vor og það sem af er sumri. Góð þátttaka og góður félagsandi hefur einkennt viðburði félagsins. Laugardaginn 6. maí var hátíðar-afmælisreiðtúr í tilefni 70 ára afmælis félagsins niður á Akratorg. Reiðtúrinn fór fram í veðurblíðu og tókst vel til. Áð var […]

Stelpurnar töpuðu gegn Þrótti R

Stelpurnar okkar í meistaraflokki kvenna voru frekar óheppnar í gærkvöldi þegar þær töpuðu 3-0 fyrir Þrótti R á Eimskipsvellinum í