ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

þjótur

1.grein

Félagið heitir ÞJÓTUR og er íþróttafélag fatlaðra á Akranesi.  Félagið er staðsett á Akranesi.  Félagið er aðili að Íþróttabandalagi Akraness, Í.F. og Í.S.Í. og því háð lögum, reglum og samþykktum íþróttahreyfingarinnar.

2.grein

Markmið félagsins er að glæða áhuga á íþróttastarfi fatlaðra, jafnframt því að vinna að betri aðstöðu þeirra.

3. grein

Félagsmaður getur hver sá orðið sem hefur áhuga á íþróttum fatlaðra.

4. grein

Árgjald félagsins skal ákveða á aðalfundi félagsins ár hvert.

5. grein

Greiði félagsmaður ekki félagsgjald í 2 ár samfleytt, ber að setja hann á skrá yfir óhlutgenga félaga, er ekki hafa leyfi til að keppa fyrir hönd félagsins, hafa ekki aðkvæðisrétt á fundum félagsins og séu ekki kjörgengir í stjórn eða nefndir.

6. grein

Stjórn félagsins skipa 5 menn:  Formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnandi.(formaður mótanefndar).  Stjórnin skal kosin skriflega á aðalfundi þannig:

Formaður til eins árs, aðrir stjórnarmenn til tveggja ára.  Ennfremur skal kjósa tvo varamenn í stjórn og tvo endurskoðendur.  Stjórnin skipti sjálf með sér verkum að öðru leyti.

7. grein

Stjórninni ber að gæta hagsmuna félagsins í öllum geinum.  Hún hefur umráð yfir eignum þess og boðar til funda.  Stjórnin getur enga fullnaðarákvörðun tekið, nema þrír stjórnarmenn séu henni fylgjandi.

Edit Content
Edit Content
Edit Content