Sumarnámskeið Fimleikafélagsins
Það verður nóg í boði hjá okkur í sumar fyrir börn á öllum aldri Fimleika- & Parkour Sumarleikjanámskeið fyrir börn fædd 2015-2017 Sumar Fimleikar fyrir börn fædd 2013-2014 & 2010-2012 Sumar Parkour fyrir börn fædd 2013-2014 & 2010-2012 Trampolín-námskeið fyrir börn fædd 2010-2014 Minnum á Tvennutilboðið okkar á Sumar Fimleika- & Parkournámskeiðum ef bæði námskeið […]
Þjálfari ársins hjá Fimleikasambandinu

Þjálfari ársins hjá Fimleikasambandi Íslands er Þórdís Þráinsdóttir. Uppskeruhátíð Fimleikasambands Íslands fyrir árið 2022 fór fram í Laugardalshöll þann 5. janúar 2023. Árangri fimleika á Íslandi árið 2022 var fagnað og að venju var tækifærið nýtt til að veita ýmsar viðurkenningar til einstaklinga sem hafa lagt sitt af mörkum til íslensku fimleikahreyfingarinnar. Þjálfari ársins kemur […]
Þjálfari óskast

Parkourþjálfari óskast
Fimleikafélag ÍA Akranesi óskar eftir að ráða inn parkour þjálfara 3-5 daga í viku. Vinnutími er eftir samkomulagi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf ca. 22-26. ágúst 2022. Umsóknir ásamt ferilskrá skal senda á eyrun@ia.is . Hægt er að fá frekari upplýsingar um starfið með því að senda fyrirspurn á yfirþjálfara félagsins, Þórdísi á thordis@ia.is.
Nýr framkvæmdastjóri FIMÍA

Eyrún Reynisdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Fimleikafélags Akraness og tók hún formlega til starfa mánudaginn 10 janúar s.l. Eyrún er með BSc gráðu í íþróttafræðum og með MS gráðu í Markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum. Eyrún hefur reynslu af þjálfun og markaðsmálum frá sínum fyrri störfum og vel inni í fimleikaíþróttinni. Hún starfað sem markaðs- og mannauðsfulltrúi […]
Fimleikafélagið – laust starf
Fimleikafélag Akraness augýsir eftir framkvæmdastjóra í 70% starfshlutfall Sjá nánar í meðfylgjandi auglýsingu Auglýsing frá FIMÍA
Aðalfundur Fimleikafélags Akraness 2021
Aðalfundur Fimleikafélags Akranes verður haldinn mánudaginn 8.mars n.k. kl. 19.30 að Garðavöllum. Stjórn félagsins hefur ákveðið að halda fundinn miðað við þær samkomutakmarkanir sem í gildi eru, en þær heimila 50 manna fund. Hér að neðan fylgir ársreikningur félagsins. Fimleikafélagið er ágætlega statt og á síðasta ári voru rekstrartekjur rúmar 45milljónir kr. en rekstrargjöld rúmar […]
Skráning er hafin fyrir vorönn
Fimleikafélagið hefur opnað fyrir skráningar á vorönnina í Nóra.
Haustfréttir FIMA
Kæru foreldrar og iðkendur. Nú er starfið hjá okkur komið í fullan gang og fer vel af stað í nýju fimleikahúsi. Iðkendahópurinn stækkar ört og hafa nú þegar bæst við um hundrað börn og er iðkendafjöldinn kominn vel yfir 500. Félagið vinnur nú að því að breikka hópinn enn meira og hefur verið bætt við […]
Fimleikafélagið eignast sína fyrstu landsliðsstúlku.

þann 3.júlí sendi Fimleikasamband Íslands út landsliðshópa sína. Guðrún Juliane Unnarsdóttir 16 ára skagamær var valin í stúlknaliðið. Fyrir átti Fimleikafélagið landsliðsþjálfara, en Þórdís Þráinsdóttir er landsliðsþjálfari með blandaðað lið unglinga. Fimleikafélagið er stolt af þeim og hlökkum til að fylgjast með þeim á þessum vettvangi.