ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Blakfélagið bresi

Lög Blakfélagsins Bresa

1. gr.

Félagið heitir Blakfélagið Bresi og er aðsetur þess á Akranesi.

2. gr.

Markmið félagsins er að iðka blak, glæða áhuga á þeirri íþrótt og stuðla að bættri aðstöðu til iðkunar á blaki. Fyrst um sinn miðast iðkun aðallega við öldungahópa, en með bættri aðstöðu verður flokkum fjögum.

3. gr.

Félagsmaður getur hver sá orðið, sem hlýtur samþykki stjórnar félagsins.

4. gr.

Ársgjald félagsins skal ákveða á aðalfundi félagsins ár hvert.

5. gr.

Greiði félagsmaður ekki félagsgjöld í tvö ár samfleytt, ber að setja hann á skrá yfir óhlutgenga félaga, er ekki hafa leyfi til að keppa fyrir hönd félagsins, hafi ekki atkvæðisrétt á fundum félagsins og séu ekki kjörgengir í stjórn eða nefndir.

6. gr.

Stjórn félagins skipa 3 menn: Formaður, ritari og gjaldkeri. Ritari er jafnframt formaður mótanefndar. Stjórnin skal kosin skriflega á aðalfundi þannig: Formaður til eins árs, aðrir stjórnarmenn til tveggja ára, en í fyrsta sinn eftir að lagagrein þessi öðlast gildi er þó annar meðstjórnandi kosin til eins árs. Ennfremur skal kjósa tvo varamenn í stjórn og tvo endurskoðendur.

7. gr.

Stjórninni ber að gæta hagsmuna félagsins í öllum greinum. Hún hefur umráð yfir eignum þess og boðar til funda. Stjórnin getur enga fullnaðarákvörðun tekið, nema meirihluti stjórnarmanna séu henni fylgjandi. Stjórnin getur vikið mönnum ú félaginu álíti hún framkomu þeirra félaginu til vansa. Þó getur viðkomandi óskað þess að málið verði tekið fyrir á félagsfundi.

8. gr.

Reikningar félagsins miðast við áramót.

9. gr.

Aðalfund skal halda ár hvert í janúar mánuði og félagsfundi svo oft og stjórnin ákveður eða skrifleg ósk kemur frá eigi færri en 10 félagsmönnum. Til aðalfundar skal boða með minnst 10 daga fyrirvara og er hann lögmætur sé löglega til hans boðað. Á aðalfundi eða félagsfundum skal kjósa sérstakan fundarstjóra. Á aðalfundi skulu mál tekin fyrir í þeirri röð sem hér segir:

1. Skýrsla stjórnar.

2. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar.

3. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga og reikningar bornir undir atkvæði.

4. Lagðar fram lagabreytingar, ef tillögur eru þar um.

5. Önnur mál.

6. Kosning stjórnar, varastjórnar og endurskoðenda, samkvæmt 6. grein félagslaga.

10 gr.

Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi og nægir einfaldur meirihluti atkvæða til þess að lagabreyting sé lögleg.

Edit Content
Edit Content
Edit Content