Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs

Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs tók til starfa á vormánuðum eftir að mennta- og menningarmálaráðuneytið setti lög um starfið síðastliðið haust. Samskiptaráðgjafi hefur það markmið að auka öryggi í íþrótta- og æskulýðsstarfi barna, ungmenna og fullorðinna. Markmiðið er að allir geti tekið virkan þátt á sínum vettvangi og jafnframt leitað sér aðstoðar eða leitað réttar síns […]

Ráðgjöf í íþróttasálfræði – síðustu tímarnir

Frábært tilboð til iðkenda, þjálfara og forráðamanna. Um er að ræða ráðgjöf í íþróttasálfræði fyrir 14 ára og eldri  sem er styrkt af ÍA og Akraneskaupstað og er íþróttafólki og þjálfurum að kostnaðarlausu! Smellið á myndina hér fyrir neðan og fáið nánari upplýsingar.   frétt um að við séum að klára styrkinn sem við fengum vegna […]

Ánægjuvogin – Ánægja með íþróttafélagið

Ánægjuvogin 2020 er unnin af Rannsóknum og greiningu fyrir ÍSÍ og UMFÍ. Niðurstöður Ánægjuvogarinnar 2020 eru mjög jákvæðar fyrir íþróttahreyfinguna á Íslandi. Aðrir tenglar sem tengjast Ánægjuvoginni 2020 eru hér fyrir neðan: Ánægjuvogin 2020 pdf Nánar má lesa um Ánægjuvogina hér á vefsíðu ÍSÍ. Streymi frá kynningunni á Ánægjuvoginni 2020

Hreyfistöðvar í Garðalundi vígðar

Þann 7. júlí sl. opnaði Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri Akraness, Hreyfistöðvar í Garðalundi en þar eru ellefu upplýsingaskilti með leiðbeiningum um æfingar. Hreyfistöðvar í Garðalundi eru hluti af Heilsueflandi samfélagi á Akranesi og er verkefnið samstarfsverkefni Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness. Sævar sagði frá því að með innleiðingu heilsueflandi samfélags á Akranesi þá hafi aukinn kraftur […]

Unglingalandsmóti frestað um eitt ár

Framkvæmdanefnd Unglingalandsmóts UMFÍ hefur ákveðið í samræmi við sóttvarnarlækni og Almannavarnir að fresta mótinu um ár. Unglingalandsmót UMFÍ er vímulaus íþrótta- og fjölskylduhátíð og hefur hún verið ein af stærstu og fjölmennustu hátíðunum um verslunarmannahelgina. Mótið átti það að fara fram á Selfossi um verslunarmannahelgina í samstarfi við Héraðssambandið Skarphéðin og Sveitarfélagið Árborg. Unglingalandmót 2021 […]

Námskeið á vegum ÍSÍ fyrir stjórnendur í íþróttahreyfingunni

Í upphafi árs var haldið námskeið á vegum ÍSÍ fyrir stjórnendur í íþróttahreyfingunni og mæltist námskeiðið mjög vel fyrir. Ákveðið hefur verið að bjóða upp á annað sambærilegt námskeið dagana 16.-18. september. Námskeiðið kallast  Stjórnendaþjálfun – til móts við framtíðina. Námskeiðið er byggt á efni frá Alþjóðaólympíunefndinni en hefur verið aðlagað fyrir íslenskan raunveruleika. Aðalkennari […]

Hreyfistöðvar í Garðalundi

Þessa dagana er verið að leggja lokahönd á uppsetningu Hreyfistöðva í Garðalundi. Verkefnið er hluti af Heilsueflandi samfélagi á Akranesi og snýr að uppsetningu 11 hreyfistöðva í Garðalundi sem eiga að stuðla að aukinni hreyfingu gesta í Garðalundi. Á hverri hreyfistöð er upplýsingaskilti sem veitir skýrar og góðar leiðbeiningar um æfingar sem hægt er að […]

Útsala á ÍA göllum

Við eigum nokkra ÍA galla í stærð XS.  Verð nú 4.000, áður 6.500. Eingöngu hægt að kaupa í afgreiðslu Íþróttamiðstöðvarinnar á Jaðarsbökkum  

Domino’s styður við ÍA!

Á tímabilinu 22. – 28. júní fá allir stuðningsmenn ÍA 20% afslátt af sóttum pizzum af matseðli með því að nota kóðann IA þegar pantað er á vef/appi Þar að auki mun Domino’s láta 20% af öllum pöntunum með kóðanum renna beint til ÍA. Góð leið til að styrkja ÍA og gefa eldamennskunni frí um […]