U-15 landsleikur gegn Færeyjum í Akraneshöll á sunnudag klukkan 14.00 – Frítt inn
U 15 landslið karla hefur verið kallað saman og mun það æfa og keppa tvo leiki við Færeyjar um helgina.
Næturfrost: Garðavöllur lokaður þriðjudaginn 24.okt. fram að hádegi
Garðavöllur verður lokaður fram að hádegi í dag þriðjudag 24. október vegna næturfrost. Kylfingar eru vinsamlega beðnir að taka tillit til aðstæðna og fylgjast með tilkynningum frá vallarstjóra.
Skagamenn í U15 landsliðinu
U15 ára landslið karla mun leika tvo æfingaleiki gegn Færeyjum hér á landi um næstu helgi. Fyrri leikurinn fer fram
Brynjar Snær valinn á landsliðsæfingar
Helgina 27.-29. október næstkomandi verða haldnar úrtaksæfingar U17 ára landsliðs karla. Úr okkar hópi hefur Brynjar Snær Pálsson verið valinn
Málþing um áhrif knattspyrnunnar á Akranesi, 27.október í Tónbergi
Málþing um áhrif knattspyrnunnar á Akranesi haldið í Tónbergi, föstudaginn 27.október klukkan 15.00. Frítt inn. Frábær erindi – áhugaverðar pnelumræður.
Árgangamót, matur og skemmtun 11. nóvember
Undirbúningur fyrir Árgangamótið 2017 er í fullum gangi , en 11. nóvember ætlum við að mála bæinn gulan! Krýndir verða
Opna GrasTec haustmótaröðin: mót nr.2 af 4 – skráning á golf.is
Opin Haustmótaröð hófst s.l. laugardag 14. október á Garðavelli og nú reynum við að nýju með móti nr. 2 laugardaginn 21. október 2017.
Um er að ræða haustmót með sama fyrirkomulagi og undanfarin ár nema hvað nú verður mótaröðin opin fyrir alla áhugasama kylfinga og spilaðar 12 holur nú þegar Garðavöllur er með hverri vikunni að taka á sig meira og meira haust yfirbragð. Ath. sandgryfjur/glompur eru ekki í leik og skal ekki leika upp úr þeim en Garðavöllur lítur vel út miðað við árstíma.
Árni Snær markvörður áfram hjá ÍA
Árni Snær Ólafsson markvörður hjá meistaraflokki karla, hefur endurnýjað samning sinn við félagið til næstu tveggja ára. Árni er uppalinn
Opna Haustmót GrasTec nr. 1 af 4 – úrslit
Fyrsta Opna Haustmót GrasTec fór fram á Garðavelli 14. október. Alls tóku 27 keppendur þátt í mótinu en leikinn var 12 holu punktakeppni.
Úrslit urðu þessi:
1.Kristvin Bjarnason GL á 26 punktum – Gisting fyrir tvo með morgunverði á hótel Northen Light Inn www.nli.is
2.Brynjar Sæmundsson GL á 25 punktum – Gjafbréf á veitingar staðnum Galito www.galito.is
3.Einar Hannesson GL á 25 punktum – Gjafabréf í versluninni Golfskálinn www.golfskalinn.is og öl frá 19. Holan
Næst holu á 14. braut: Magnús Brandsson GL, 726 cm.
Næst holu á 18. braut: Matthías Þorsteinsson GL, 105 cm.
Verðlaun fyrir næst holu gáfu Íslandsbanki og 19. Holan
Næsta mót fer fram laugardaginn 21. október. Hvetjum félagsmenn GL til að taka þátt í mótinu og bjóðum kylfinga úr öðrum golfklúbbum velkomna.
Munið útdráttarverðlaun allra keppenda úr öllum mótum í lok mótaraðarinnar, GJAFABRÉF MEÐ GB FERÐUM AÐ ANDVIRÐI 50.000 KR.
Landsliðsæfingar hjá U19 kvenna
Helgina 3. -5. nóvember næstkomandi fara fram landsliðsæfingar hjá U19 ára landsliði kvenna. Frá ÍA hefur Bergdís Fanney Einarsdóttir verið