ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Árni Snær markvörður áfram hjá ÍA

Árni Snær markvörður áfram hjá ÍA

18/10/17

#2D2D33

Árni Snær Ólafsson markvörður hjá meistaraflokki karla, hefur endurnýjað samning sinn við félagið til næstu tveggja ára. Árni er uppalinn hjá ÍA og er gríðarlega mikilvægur fyrir ÍA liðið jafnt innan vallar sem utan. Árni sem er 26 ára gamall, spilaði sinn fyrsta deildarleik sumarið 2009, en frá árinu 2014 hefur hann verið aðalmarkmaður Skagamanna með stuttum hléum.

Árni er spenntur að takast á við það verkefni sem framundan er: „Það er gríðarlegur metnaður í gangi hjá ÍA og spennandi verkefni framundan við að koma liðinu aftur í röð þeirra bestu. Ég vil svo sannarlega taka þátt í þeirri áskorun og þar skiptir miklu máli að ég er einfaldlega með svo stórt Skagahjarta. Ég hlakka líka til að starfa með nýjum þjálfurum liðsins þeim Jóa Kalla og Sigga Jóns, þar er öflugt teymi á ferðinni„ segir Árni Snær.

 

Jóhannes Karl Guðjónsson nýráðinn þjálfari ÍA liðsins er að vonum ánægður með þessi tíðindi: „Árni er lykilmaður í Skagaliðinu og hann hefur sýnt að auk þess að vera feikna góður markmaður þá er hann líka mikill leiðtogi á vellinum. Undir stjórn Guðmundar Hreiðarssonar markmannsþjálfara ÍA  hefur Árni náð miklum framförum undanfarin ár og stimplað sig inn sem einn af allra bestu markvörðum landsins“ segir Jóhannes Karl að lokum.

 

 

Knattspyrnufélag ÍA

 

Akranesi 18. október 2017

Edit Content
Edit Content
Edit Content