ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Yfirlýsing frá ÍSÍ vegna ofbeldis í tengslum við íþróttastarf

Yfirlýsing frá ÍSÍ vegna ofbeldis í tengslum við íþróttastarf

14/01/18

#2D2D33

Íþróttasamaband Íslands, ÍSÍ hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) harmar mjög að einstaklingar innan vébanda þess hafi þurft að þola ofbeldi í tengslum við íþróttastarf. ÍSÍ fordæmir með öllu allt ofbeldi í starfsemi íþróttahreyfingarinnar enda er slík hegðun óásættanleg og ólíðandi. 
Umræðan sem fram hefur farið um allan heim undir merkinu #metoo hefur beint athyglinni að víðfeðmu ofbeldi gagnvart konum um allan heim og þá oft í krafti valds eða stöðu þess sem því beitir. 
ÍSÍ fagnar þeirri umræðu sem fylgt hefur #metoo herferðinni og þakkar þeim einstaklingum sem þar hafa komið fram með frásagnir sínar fyrir frumkvæðið og hugrekkið sem þeir hafa sýnt, með því að skýra frá þessum alvarlegu málum og vekja upp nauðsynlega umræðu um vandann. ÍSÍ er nú að leita leiða til að tryggja þeim sem orðið hafa fyrir alvarlegu ofbeldi í tengslum við íþróttastarf faglega aðstoð.
Það er og hefur verið markmið íþróttahreyfingarinnar að tryggja öryggi, jafnrétti og jafnræði þeirra sem iðka og starfa innan íþróttahreyfingarinnar. Þau skilaboð sem fram hafa komið með frásögnum íslenskra kvenna um ofbeldi innan hreyfingarinnar á Íslandi hafa sýnt að ástæða er til að gera betur. 
Íþróttahreyfingin mun ekki sitja aðgerðarlaus hjá varðandi þann vanda sem birst hefur gegnum #metoo herferðina og er þegar hafin vinna við að móta aðgerðir sem gagnast geta hreyfingunni í baráttunni gegn ofbeldi. 
Skilaboðin eru einföld: Ofbeldi verður ekki liðið!

Við hjá Íþróttabandalagi Akraness tökum heilshugar undir yfirlýsingu ÍSÍ og gerum hana að okkar.

Á aðalstjórnarfundi ÍA þann 4. desember sl. þar sem sæti eiga allir formenn 19 aðildarfélaga ÍA og framkvæmdastjórn ÍA, var samþykkt að vinna að heildstæðri stefnu varðandi aðgerðir og viðbrögð við ofbeldi í tengslum við íþróttastarf. Í þeirri vinnu verður horft til þess sem ÍSÍ hefur lagt fram sem og önnur íþróttafélög og sérsambönd. Ákveðið hefur verið að Íþróttabandalag Akraness muni koma á fót fagráði sem öll aðildarfélög og iðkendur geti leitað til.

Fyrir hönd framkvæmdastjórnar ÍA

Hildur Karen Aðalsteinsdóttir

 

 

 

Edit Content
Edit Content
Edit Content