ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Vorhreinsun á Akranesi

Vorhreinsun á Akranesi

30/04/19

20180425_181639247_iOS

Ákveðið hefur verið að endurtaka leikinn frá síðasta ári og taka höndum saman og hreinsa rusl í bænum okkar og strandlengju þann 8. maí.

Við ætlum að byrja kl. 17:00 og vera að til kl. 18:30. Við munum skipta bænum niður í svæði sem við úthlutum þeim félögum/flokkum/hópum sem hafa áhuga á að vera með.

Að loknum hreinsunardegi verður boðið upp á kakó og kleinur við Íþróttahúsið við Vesturgötu og Íþróttamiðstöðina á Jaðarsbökkum.  Einnig verður frítt í sund fyrir alla sem taka þátt.

Við gerðum þetta í fyrsta skipti á síðasta ári og tókst heldur betur vel til en um 400 manns mættu til að fegra umhverfið á Akranesi og fékk ÍA umhverfisverðlaun Akraneskaupstaðar fyrir framtakið.

Íþróttabandalagið mun eins og í fyrra, styrkja þau aðildafélög sem taka þátt í umhverfisdeginum með okkur í samræmi við framlag hvers félags.

Endilega látið okkur vita fyrir 5. maí hvort ykkar félag muni taka þátt í verkefninu með okkur.

 

Edit Content
Edit Content
Edit Content