Við vekjum athygli á þessari vinnustofu sem er 10. mars á Akranesi.
Daði Rafnsson stýrir vinnustofunum en hann er doktorsnemi við sálfræðideild Háskólans í Reykjavík, fagstjóri Afrekssviðs Menntaskólans í Kópavogi og hefur starfað fyrir fjölda íþróttaliða hérlendis og erlendis.
Á vinnustofunni verður fjallað um hvaða þættir skipta mestu máli til að börn eigi sem jákvæðasta upplifun í íþróttum. Einblínt verður á hlutverk foreldra/forráðamanna, viðhorf þeirra og samskipti sem hafa mikil áhrif á ungt íþróttafólk. Hver vinnustofa tekur um 2 klst. og er aðgangur ókeypis. Boðið verður upp á kaffi og létt snarl.
Við hvetjum alla foreldra/forráðamenn sem hafa tök á, að mæta og taka þátt – sjá skráningarform í auglýsingunni hér að neðan.

