ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Viktor Helgi semur við ÍA

Viktor Helgi semur við ÍA

11/01/18

#2D2D33

Viktor Helgi Benediktsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Knattspyrnufélag ÍA og gildir samningurinn út leiktíðina 2020. Viktor Helgi er fæddur árið 1998 og er uppalinn í FH. Hann spilaði 19 leiki með HK í Inkasso-deildinni í fyrra og skoraði þrjú mörk.

Aðspurður sagði Viktor Helgi: “Það er mikill heiður að fá að spila fyrir klúbb með jafn mikla sögu og ÍA. Þetta var í raun aldrei nein spurning eftir að Jói Kalli hringdi í mig og sagðist vilja sjá mig í gulu. Ég átti frábært ár hjá HK 2017 undir hans stjórn og ég veit að það verður frábært að fá að vinna með honum aftur. Það skemmir svo alls ekki fyrir að hafa Sigga Jóns við hlið hans. Það eru rosalega spennandi tímar framundan hér á Skaganum og get ég ekki beðið eftir því að byrja. Áfram ÍA!.”

Knattspyrnufélag ÍA fagnar því að náðst hafi samningar við Viktor Helga og telur að hann eigi eftir að láta ljós sitt skína í Inkasso-deildinni í sumar.

“Ég er virkilega ánægður með að hafa fengið Viktor Helga til liðs við okkur á Skaganum. Viktor passar vel inní framtíðarmarkmið okkar sem eru að búa til öfluga liðsheild og koma Skaganum aftur í efstu deild.” sagði Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA.

Edit Content
Edit Content
Edit Content