ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Valdís Þóra íþróttamaður ársins á Akranesi

Valdís Þóra íþróttamaður ársins á Akranesi

07/01/18

#2D2D33

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr GL var kjörin íþróttamaður ársins á Akranesi 2017 laugardaginn 6. janúar. Þetta er annað árið í röð sem hún hlýtur titilinn en Einar Örn Guðnason kraftlyftingarmaður varð annar og hestaíþróttamaðurinn Jakob Svavar Sigurðarson þriðji.
Þetta er í sjötta sinn sem Valdís Þóra er efst í kjöri íþróttamanns Akraness en hún var fyrst kjörin íþróttamaður Akraness árið 2007.
Valdís Þóra var einnig tilnefnd sem íþróttamaður ársins af samtökum íþróttafréttamanna og var þar á meðal 10 efstu í kjörinu sem fram fór 28. desember s.l. Valdís endaði að lokum í 9. sæti í kjörinu.
Golfklúbburinn Leynir óskar Valdísi Þóru til hamingju með góðan árangur undanfarin misseri og að vera kjörinn íþróttamaður Akraness og sömuleiðis að vera tilnefnd sem íþróttamaður ársins.

Edit Content
Edit Content
Edit Content