Uppskeruhátíð Landssambands Hestamannafélaga (LH) var haldin s.l laugardag. Á hátíðinni voru veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur á árinu. Dreyrafélaginn Jakob Svavar Sigurðsson fékk stærstu viðurkenningu kvöldsins þegar hann var valinn Knapi ársins 2017. Hann var einnig valinn íþróttaknapi ársins og tilnefndur í 2 öðrum flokkum. Glæsileg uppskera og árangur hjá Jakobi á þessu ári enda landaði hann t.d heimsmeistaratitli í tölti í sumar 🙂
Hestamannafélagið óskar Jakobi innilega til hamingju með glæsilegan árangur.
———————-
Sjá nánar frétt af árshátið/uppskeruhátíðinni á vef LH – www.lhhestar.is
” Uppskeruhátíð hestamanna fór vel fram á Hilton Reykjavík Nordica síðastliðið laugardagskvöld. Lárus Ástmar Hannesson formaður LH setti hátíðina og fól Atla Þór Albertsyni veislustjórnina og fór honum sá starfi afar vel úr hendi.
Hljómsveitin Albatross lék síðan fyrir dansi með Sverrir Bergmann í fararbroddi. Hestamenn dönsuðu fram á nótt við þeirra undirspil og skemmtu sér konunglega.
Dagskrá hátíðarinnar var hefðbundin og hápunktur hennar þegar íþróttamenn okkar og heiðursverðlaunahafar voru verðlaunaðir.
Efnilegasti knapi ársins: Máni Hilmmarsson , Skugga
Íþróttaknapi ársins: Jakob Svavar Sigurðsson, Dreyra
Gæðingaknapi ársins: Daníel Jónsson, Spretti
Skeiðknapi ársins: Guðmundur Björgvinsson, Geysi
Kynbótaknapi ársins: Daníel Jónsson, Spretti
Knapi ársins: Jakob Svavar Sigurðsson, Dreyra
Keppnishestabú ársins: Litla Brekka
LH veitti Jóni Alberti Sigurbjörnssyni heiðursverðlaun fyrir áralanga aðkomu hans að málefnum íslenska hestsins um allan heim.
Félag hrossabænda verðlaunaði ræktunarbú ársins og þann heiður hlaut ræktunarbúið Efsta-Sel. Heiðursverðlaun félags hrossabænda hlaut Magnús Einarsson í Kjarnholtum
LH óskar verðlaunahöfum til hamingju með sín verðlaun og klárt mál að ekkert nema dugnaður, markviss þjálfun og elja skila slíkum sigrum sem þessir íþróttamenn ná. ”