Unnur Ýr Haraldsdóttir hefur samið á ný við Knattspyrnufélag ÍA og mun leika með meistaraflokki í 1. deildinni sumarið 2018.
Unnur Ýr hefur leikið með meistaraflokki kvenna frá árinu 2009 að undanskyldu tímabilinu 2016. Hún hefur leikið 114 leiki og skorað í þeim 33 mörk.
Við hjá KFÍA fögnum þessum nýja samningi og trúum því að Unnur Ýr styrki liðið mikið í baráttunni um 1. deildina í sumar.