Hilmar Halldórsson og Guðfinnur Leóson gengu nýverið frá samningi við Knattspyrnufélag ÍA. Þetta eru báðir ungir og efnilegir skagamenn sem hafa farið í gegnum alla yngri flokka knattspyrnufélagi ÍA.
Það er stefna félagsins að byggja liðið upp á ungum og efnilegum skagamönnum og gefa ungum strákum tækifæri.
Hilmar fótbrotnaði í janúar í fyrra og var bataferli hans strangt. Hann var frá æfingum lengi og í samvinnu við þjálfarateymið í 2.flokki hóf hann bataferlið. Bataferlið tók 6-8 mánuði. Þetta sýnir þann dug sem býr í honum. Að gefast ekki upp.
Við óskum strákunum til hamingju með samninginn, framtíðin er ykkar!