Við í Sundfélagi Akraness kynnum með stolti nýjan ungbarnasundskennara Fabio La Marca.
Við erum mjög heppin að fá hann í okkar raðir en Fabio er íþrotta – og heilsufræðingur og grunnskólakennari.
Hann er reyndur ungbarnasundskennari og er jafnframt i stjórn Busla sem eru samtök ungbarnasundkennarar á Íslandi.
Kennt er á sunnudögum og hefjast námskeiðin þann 18. ágúst i Bjarnalaug.
Ungbarnasund eru skemmtileg samvera fyrir börn og foreldra.
10.30-11.10 Framhald II, börn frá 12-24 mánaða
11.20-12.00 Byrjendur, börn frá 3-7 mánaða
12.10-12.50 Framhald I, börn frá 5-12 mánaða.
Verð: 13000,- Kennt er í 8 skipti.
Skráning i Nóra https://ia.felog.is/
Nánari upplýsingar sundfelag@sundfelag.com
Námskeið fyrir eldri krakka hefjast í lok ágúst og verða auglýst í byrjun ágúst.