ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Undirritun samnings við Akraneskaupstað

Undirritun samnings við Akraneskaupstað

01/07/21

IMG_0271 (2)

Í dag 1. júlí var undirritað samningur um rekstur og samskipti Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness. Markmið samnings þessa er að viðhalda öflugu samstarfi kaupstaðarins og ÍA í því skyni að íþróttastarf á Akranesi verði áfram þróttmikið, æsku og almenningi á Akranesi til heilla. Sérstök áhersla er lögð á forvarna- og uppeldisgildi íþrótta og virka samvinnu íþrótta hreyfingarinnar við skólana og almenning með fyrrnefndar áherslur í huga. Samningurinn byggir á sameiginlegri vinnu Akraneskaupstaðar og ÍA á liðnu ári og er ætlunin að fá reynslu á. Gildir samningurinn út árið 2021 og er stefnt að því að Akraneskaupstaður og ÍA vinni saman að fyrirkomulagi til framtíðar sem markmið er að verði klárað milli aðila fyrir áramót.

Í samningnum kemur fram að Akraneskaupstaður muni styrkja rekstur ÍA um 4,5 m.kr, aðildarfélög innan ÍA um 35,1 m.kr. Þar af barna og unglingastarf um 23,4 m.kr og 11,7 m.kr í styrktarsjóð sem verður í höndum ÍA með aðkomu Akraneskaupstaðar.

Akraneskaupstaður hefur um langt árabil stutt vel við rekstur Íþróttabandalags Akraness og aðildarfélaga þess. Á síðustu árum hafa kröfur frá m.a. iðkendum, foreldrum, ÍSÍ o.fl. til íþróttafélaga um fagmennsku í íþróttastarfi, fjármálum og fleiri þáttum aukist verulega. Þetta krefst mikillar vinnu sem að mjög miklu leyti er unnin af sjálfboðaliðum. Akraneskaupstaður hefur stutt við þetta mikilvæga íþróttastarf með ýmsum hætti m.a. með tómstundaframlagi til íþróttaiðkenda, greiðslu launa starfsmanna vinnuskóla sem starfa fyrir íþróttafélög, beinum styrkjum til barna og unglingastarfs og einnig beinum rekstarstyrkjum til einstakra íþróttafélaga. Eru þessir styrkir til viðbótar því sem nú er samið um.

„Með þessari ákvörðun eru bæjaryfirvöld að leggja áherslu á sjónarmið sitt um hversu mikilvægt starf íþróttahreyfingarinnar er í lífi og þroska barna og ungmenna og í félagslegri umgjörð bæjarfélagsins. Það er forgangsverkefni Akraneskaupstaðar að styðja við fjölbreytt og framúrskarandi íþróttastarf á Akranesi og með aukinni fjárveitingu getum við betur tryggt þann stuðning“ segir Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri.

Marella Steinsdóttir formaður ÍA: „Ég vil þakka góða vinnu starfshópsins sömuleiðis þakka Akraneskaupstað fyrir aukinn stuðning til íþróttamála og fagna því að bæjaryfirvöld sýna framsýni og skilning á því mikilvæga samfélagslega starfi sem unnið er í aðildarfélögum íA.“

Edit Content
Edit Content
Edit Content