Akraneskaupstaður auglýsir eftir styrkumsóknum til menningar- og íþróttaverkefna á árinu 2021.
Við mat og afgreiðslu styrkja til menningarverkefna verður lögð sérstök áhersla á að styðja við verkefni sem vinna að markmiðum Menningarstefnu Akraness.
Við mat og afgreiðslu styrkja til íþróttaverkefna verður lögð áhersla á að styrkja verkefni sem efla íþróttastarf á Akranesi.
Umsóknarfrestur er til og með 16. desember.
Íþróttabandalag Akraness hvetur aðildarfélög sín til þess að sækja um styrki.