Skip to content
HVAÐ ER Í BOÐI
VALMYND
ÆFINGATÖFLUR
HVAÐ ER Í BOÐI
VALMYND
Umhverfisstefna ía
ÍA lætur umhverfismál sig mikið varða og vill leggja sitt af mörkum til að vernda umhverfið og bæta.
Að iðkendur, félagsmenn og stuðningsfólk fylgi þeim umgengnisreglum sem gilda í íþróttamannvirkjum á Akranesi.
Að ruslafötur séu til staðar á æfinga- og keppnissvæðum og allir hvattir til að nýta þær.
Að hvetja til sparnaðar í keyrslu á æfingar og mót með því að ganga, hjóla og sameinast í bíla.
Að stuðla að því að almenningssamgöngur séu í boði fyrir iðkendur sem þurfa að sækja æfingar langt að.
Aðildarfélög eru hvött til að safna dósum og lágmarka notkun einnota umbúða.
Að á ársþingum ÍA, formannafundum og öðrum viðburðum sé reynt að takmarka notkun pappírs og leggja áherslu á rafræna upplýsingagjöf.
Að skipuleggja umhverfisdag þar sem félagsmenn fara saman út og plokka rusl með skipulögðum hætti á Akranesi.