21 sundmaður, 13 ára og eldri frá S.A tóku þátt í Ásvallarmóti í Hafnarfirði um helgina. Alls tóku þátt 330 sundmenn frá 18 félögum, þar af eitt frá Cananda.
Okkar sundmenn áttu góða helgi, tímarnir voru góðir miða við strangar æfingar núna hjá þeim elstu vegna íslandsmeistaramóts sem framundan er. Krakkarnir bættu sig í 66 stungum af 99 sem er mjög flott.
Brynhildur Traustadóttir setti Akranesmet í 1500m skriðsundi á tímanum 18.31.31 en það er bæting um 22 sek. frá metinu sem hún átti sjálf síðan í fyrra.
Akranesmet var einnig sett í blönduðu 4×50 skrið boðsundi, 13-14 ára með þeim, Kristjáni Magnússyni, Einari Margeiri Ágústssyni, Ingibjörgu Svövu Magnúsardóttur og Guðbjörgu Bjartey Guðmunsdóttur, en þau fóru á tímanum 2.00.60 sem er bæting um eina sek. frá gamla metinu sem var frá 2015.
Önnur útslit voru þessi :
Gull
Ragnheiður Karen Ólafsdóttir 100 & 200 bringusund 14-15 ára flokki
Silfur
Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir 100 & 200 bringusund 14-15 ára flokk
Brynhildur Traustadóttir 1500 skriðsund opin flokk
Brons :
Enrique Snær Llorens Sigurðsson 200 fjórsund 17-18 ára flokk
Enrique Snær Llorens Sigurðsson 800 skriðsund Opin flokk
Brynhildur Traustadóttir 400 skriðsund opin flokk
Kristján Magnusson 100m baksund 14 & yngri
Guðbjarni Sigþórsson 200 fjórsund 14 & yngri