ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Þing ÍA var haldið 25.apríl s.l.

Þing ÍA var haldið 25.apríl s.l.

13/05/23

BLIK6384

Ársþing ÍA var haldið 25. Apríl síðast liðinn í Tónbergi sal Tónlistarskólans.

Þing ÍA hafa verið haldin í þessum sal síðustu ár og er mikil ánægja stjórnar ÍA með þennan sal.

Þingið gekk vel að mati stjórnar ÍA, þó svo að nokkur atriði fyrir þing hafi ekki alveg gengið upp eins og áætlanir gerðu ráðfyrir gekk allt upp að lokum.

Ungur þingforseti spreytti sig í fyrsta skiptið sem slíkur, þar var mættur fulltrúi ÍA í ungmennaráði Akraness, Björn Viktor Viktorsson. Hann leysti hlutverkið sitt mjög fagmannlega og vel úr hendi.

Mæting var þokkalega góð, formaður kjörbréfanefndar Trausti Gylfason fór yfir kjörbréf og lét vita að 46 fulltrúar voru mættir af þeim 66 fulltrúum sem rétt hafa til setu á þinginu.

Hrönn Ríkharðsdóttir fór yfir skýrslu stjórnar.

Í forföllum gjaldkera ÍA fór framkvæmdastjórinn Guðmunda Ólafsdóttir yfir reikninga og gerið grein fyrir þeim litlu breytingum sem orðið hafa á milli ára.

Engar spurningar eða vanga veltur komu um reikningna bandalagsins né skýrslu stjórnar.

Fulltrúi ÍSÍ á þinginu Garðar Svansson ávarpaði þingið og flutti kveðju stjórnar og starfsfólks ÍSÍ ásamt því að afhenda gullmerki ÍSÍ fyrir framúrskarandi störf í þágu íþrótta á Akranesi.

Marella Steinsdóttir fyrrum formaður ÍA veitti merkinu viðtöku.

ÍA þakkar Marellu fyrir sitt óeigingjarna starf í þágu íþrótta á Akranesi á sama tíma er henni óskað innilega til hamingju með gullmerki ÍSÍ

Fulltrúi UMFÍ Guðmunda Ólafsdóttir ávarpaði þingið og flutti kveðjur stjórnar UMFÍ og starfsfólki þess. Einnig var sérstkalega vakin athygli á viðburðum á vegum UMFÍ eins og landsmót 50+ sem haldið er í Stykkishólmi dagana 23.-25. júní n.k. svo og Unglingalandsmóti sem haldið verður á Sauðárkróki um verslunnarmannahelgina 3-6. ágúst n.k.

Eftir veitingahlé þar sem Sundfélag Akraness sá um stórkostlegar veitingar var farið í heiðranir frá Íþróttabandalagi Akraness.

Það voru stjórnaraðilar ÍA þau Emilía Halldórsdóttir og Heiðar Mar Björnsson sem afhentu viðurkenningarnar ásamt blómum til þeirra einstaklinga sem sem hlotið hafa tilnefningu frá aðildarfélögum og eða stjórn ÍA.

Að þessu sinni hlutu átta einstaklingar bandalagsmerki ÍA þau eru í starfrófsröð

Daníel Þór Heimisson  tilnefndur af Badmintonfélagi Akraness

Egill Guðvarður Guðlaugsson tilnefdur af Badmintonfélagi Akraness

Elín Klara Svarsdóttir tilnefnd af stjórn ÍA

Jóhann Þór Sigurðsson tilnefndur af Golfklúbbinum Leyni

Karitas Eva Jónsdóttir tilnefnd af Badmintonfélagi Akraness

Reynir Sigurbjörnsson tilnefndur af Golfklúbbinum Leyni

Steinn Mar Helgason tilnefndur af stjórn ÍA

Þórður Emil Ólafsson tilnefndur af Golfklúbbinum Leyni

Er þeim þakkað innilega fyrir sín störf í þágu íþrótta á Akranesi og óskað innilega til hamingju með tilnefninguna.

Samfélagsskjöldur ÍA var veittur í fyrsta skiptið árið 2022 og verður árlegt hér eftir .

Í ár var það verslun Einars Ólafssonar sem hlaut viðurkenningu ÍA.

Feðgarnir Einar og Einar komu og veittu viðurkenningunni viðtöku.

Kosning stjórnar var auðleyst því allir aðalfulltrúar sitjandi stjórnar þar með formaðurinn gáfu áfram kost á sér og voru þau öll kjörin með lófaklappi salarins. Einn varafulltrúi stjórnar gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu vegna búferlaflutninga hún Marella Steinsdóttir, í stað hennar var kjörinn Tómas Kjartansson. Hann er boðinn velkominn til starfa í stjórn.

Formaður Umf. Skipaskaga kom í pontu undri liðnum önnur mál og vakti athygli á því að frjálsar væru að byrja aftur og óskaði eftir samstarfi um aðstöðu í Akraneshöll.

Fulltrúi Keilufélagsins kom einnig í pontu undir önnur mál og ræddi mikilvægi samstarfs og samvinnu. Ekki mætti gleyma því að ÍA væri meira en fótbolti og sund.

Aðrir kvöddu sér ekki hljóðs undir liðinum önnur mál.

Þingforseti gaf því formanni ÍA orðið og sleit hún þingi

Allar myndir eru teknar af Blik studio / Daníel

Edit Content
Edit Content
Edit Content