ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Styrkveitingar Akraneskaupstaðar til íþróttamála

Styrkveitingar Akraneskaupstaðar til íþróttamála

11/03/18

#2D2D33

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 15. febrúar 2018 styrkveitingar til íþrótta- og menningarmála að andvirði 7,7 m.kr. Um er að ræða úthlutun styrkja úr sjóði atvinnu-, íþrótta- og menningarmála en auglýst var eftir umsóknum í sjóðinn í nóvember með umsóknarfrest til 17. desember síðastliðinn.

Bæjarráð ákvað að skilyrða greiður til íþróttafélaga í þá veru að styrkþegar sem bjóða upp á tómstundaiðkun fyrir börn og unglinga hafi til staðar siðareglur, viðbragðsáætlanir og fræðslu um ofbeldi, kynferðislega áreitni og kynferðisofbeldi fyrir iðkendur og starfsmenn innan félagsins. Áhersla er á að fræðsla nái til starfsmanna og þjálfara. Öll íþróttafélög sem fengu úthlutað styrk þurfa að skila bæjaryfirvöldum yfirlýsingu frá stjórn félagsins um að framangreint verði uppfyllt fyrir 15. maí 2018.

Samhliða úthlutun úr sjóðnum var samþykkt að gera breytingar á áðurnefndum sjóði og skipta honum upp þannig að það verði sérstakur sjóður fyrir annars vegar íþróttatengd verkefni og hins vegar menningartengd verkefni. 

Eftirtaldir aðilar fengu úthlutað styrkjum í ár vegna íþróttamála:

Badmintonfélag Akranes – rekstarstyrkur kr. 200.000
Blakfélagið Bresi – rekstarstyrkur kr. 75.000
Brynjar Már Ellertsson – ferðastyrkur kr. 150.000
Fimleikafélag Akraness – rekstarstyrkur kr. 200.000
Golfklúbburinn Leynir – tækjabúnaður kr. 200.000
Íþróttabandalag Akraness – tækjabúnaður kr. 200.000
Íþróttabandalag Akraness – markþjálfi kr. 200.000
Íþróttafélagið Þjótur – rekstrarstyrkur kr. 300.000
Jóhann Ársæll Atlason – ferðastyrkur kr. 150.000
Karatefélag Akraness – æfingarbúðir erlendis kr. 150.000
Keilufélag Akraness – tækjabúnaður kr. 275.000
Knattspyrnufélag ÍA – fyrirlestraröð kr. 300.000
Knattspyrnufélagið Kári – boltakaup kr. 150.000
Körfuknattleiksfélag ÍA – boltakaup kr. 150.000
Sigurfari – siglingafélag Akraness – siglingarnámskeið kr. 200.000
Sjóbaðsfélag Akraness – viðburður á Írskum dögum kr. 100.000
Sundfélag Akraness – rekstarstyrkur kr. 50.000
Valdís Þóra Jónsdóttir – ferðastyrkur kr. 300.000
Vélhjólaíþróttafélag Akraness – framkvæmdastyrkur kr.  150.000

Edit Content
Edit Content
Edit Content