ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Styrkir til íþrótta- og tómstundafélaga 2020

Styrkir til íþrótta- og tómstundafélaga 2020

21/04/20

Akranes 3

Akraneskaupstaður veitir 20 milljónir til íþrótta- og tómstundafélaga á Akranesi á árinu 2020. Markmiðið er að styðja virk íþrótta- og tómstundafélög á Akranesi til að halda uppi öflugu íþrótta-, félags- og tómstundastarfi fyrir börn og unglinga. Styrktarsjóðurinn hækkar í ár um 30% en á árinu 2019 voru veittir styrkir að fjárhæð kr. 15,5 milljónir króna. Tilgangur styrkjanna er að veita fjárhagslegan stuðning til þjálfunar og leiðsagnar barna og unglinga á aldrinum 3 – 18 ára. Skilyrði er að félagið hafi starfað í a.m.k. 2 ár og staðið skil á lögformlegum skyldum sínum.

Hér er sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar en einnig er hægt að sækja um í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Styrktímabil er 1. janúar – 31. desember 2019. Umsóknarfrestur er til 3. maí 2020. Nánari upplýsingar veitir skóla- og frístundasvið Akraneskaupstaðar í síma 433 1000 eða með tölvupóst á netfangið skoliogfristund@akranes.is

https://www.akranes.is/is/frettir/styrkir-til-ithrotta-og-tomstundafelaga-a-akranesi-11

Edit Content
Edit Content
Edit Content