ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Smitgát breyting á reglugerð

Smitgát breyting á reglugerð

20/01/22

veira

Samkvæmt heimasíðu Heilbr.ráðuneytis þá hafa eftirfarandi breytingar verið gerðar á reglugerð og varðar m.a. smitgát og hafa þessar breytingar nú þegar öðlast gildi.

Tekið beint af heimasíðu heilbr.ráðuneytis:

Einstaklingum sem sæta smitgát í kjölfar smitrakningar verður ekki lengur skylt að fara í hraðpróf við upphaf og lok smitgátar frá og með morgundeginum (20.01.) en þurfa að fara gætilega í 7 daga og í PCR próf ef einkenni koma fram. Heilbrigðisráðherra hefur staðfest reglugerð þessa efnis.

Með reglugerðinni er einstaklingum í einangrun jafnframt veitt takmörkuð heimild til útiveru. 

Smitgát

Breytingarnar á reglum um smitgát eru gerðar í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Í minnisblaði hans til ráðherra kemur fram að af tæplega 16.500 einstaklingum sem sættu smitgát á fyrstu 16 dögum þessa árs greindist aðeins um 1% með Covid-smit í kjölfar prófs. Stór hluti þessa hóps voru börn á skólaaldri.

Líkt og verið hefur mun rakningateymi leggja mat á hverjir skuli sæta sóttkví og hverjir smitgát með hliðsjón af því hve mikið hver og einn hefur verið útsettur fyrir smiti. Hjá þeim sem útsetningin er metin óveruleg gilda óbreyttar reglur um smitgát, að öðru leyti en því að smitgát stendur nú yfir í 7 daga og ekki er skylt að taka hraðpróf í upphafi eða við lok hennar. Ef einstaklingur í smitgát finnur fyrir einkennum sem bent geta til Covid-19 skal hann fara í PCR-próf.

Þeir sem eru í smitgát mega sækja vinnu og skóla og sinna nauðsynlegum erindum. Þeir þurfa að hafa hugfast að smit er ekki útilokað, sýna aðgát, gæta vel að persónulegum sóttvörnum og fara þegar í stað í PCR sýnatöku ef einkenni um smit koma fram. Meðan á smitgát stendur skal takmarka samneyti við viðkvæma einstaklinga og aðra eins og hægt er.

Edit Content
Edit Content
Edit Content