ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Slöbbum saman 15. jan. til 15. feb.

Slöbbum saman 15. jan. til 15. feb.

14/01/22

SlbbSm_16x9

Slöbbum saman er verkefni sem Landlæknisembættið, ÍSÍ, UMFÍ og Sýn fara nú af stað með og miðar að því að fá fólk til að hreyfa sig.

Við viljum  hvetja landann til að fara út og labba en þar sem færðin vinnur ekki alltaf með okkur á þessum árstíma höfum við húmorinn með og ætlum því að SLABBA saman, labba í slabbi.

Markmiðið með Slöbbum saman er hvetja landsmenn til að drífa sig út að labba og miðar að því að fá fólk til fara út að hreyfa sig.

Fátt skilar jafn góðum árangri fyrir líkama og sál og hreyfing utandyra og létt hreyfing er eitthvað sem við flest getum gert.

Það er nú mikilvægar sem aldrei fyrr að huga að eigin heilsu og hreyfa sig reglulega. Ferskt loft í lungun og rösk ganga kostar ekkert en gefur svo ótrúlega mikið.

Hjálpumst að við að fá sem flesta til að vera með okkur og skrá sig á visir.is/slobbumsaman.

Við viljum fá ALLA með okkur í lið til að slabba saman og sigurvegarinn er í raun sá eða sú sem bætir sig mest í hreyfingu.

Hoppaðu í stígvélin, reimdu á þig skóna, settu hnakkinn á og slabbaðu af stað.

Ekki gleyma snjallsímanum/úrinu og fylgstu með árangrinum. Árangursmæling eykur gleðina 🙂

Þín upplifun er hvatning fyrir aðra og því væri gaman að þú deildir gleðinni með okkur.

Ef þú vilt eiga mögueika á skemmtilegum glaðningi þá getur þú skráð þig á visir.is/slobbumsaman eða merktu okkur á mynd með þér úr göngunni á samfélagsmiðlum með myllumerkinu #slobbumsaman

Einu sinni í viku drögum við úr skráningum og merktum myndum og viðkomandi fær skemmtilegan glaðning.

Aukum gleði í samfélaginu og SLÖBBUM okkur í átt að meiri gleði.

Slöbbum saman nánari kynning

Edit Content
Edit Content
Edit Content