ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Skaginn – Þorgeir og Ellert styrkja ÍA

Skaginn – Þorgeir og Ellert styrkja ÍA

03/02/21

Skaginn3X_logo_lit_pos_1

Fjórða árið í röð sýna eigendur og starfsmenn Skagans – Þorgeirs & Ellert mikinn rausnarskap með því að styrkja íþróttahreyfinguna á Akranesi um 3 milljónir króna.

 

Fyrir þann stuðning sem Íþróttabandalagið finnur í orðum og í verki er bandalagið mjög þakklátt. Styrkurinn er mjög mikilvægur fyrir starfið sem unnið er í aðildarfélögum ÍA.

 

Síðatliðin þrjú ár hefur samtals níu milljónum króna verið úthlutað úr sjóði sem Skaginn – Þorgeir og Ellert stofnuðu til að styrkja barna- og unglingastarf ÍA. Margvísleg verkefni hafa hlotið styrki allt frá eflingu einstakra íþróttagreina og til að senda leiðbeinendur á þjálfaranámskeið.

 

Við hjá ÍA þökkum enn á ný stórhug eigenda og starfsmanna Skagans – Þorgeirs & Ellerts.

 

Íþróttabandalagið hvetur aðildarfélög sín til þess að sækja um styrk úr þessum sjóði með því að senda inn umsókn á netfangið ia@ia.is fyrir 15. febrúar næstkomandi.

 

Íþróttabandalag Akraness

Edit Content
Edit Content
Edit Content