Meistaraflokkur kvenna heimsækir ÍR í Inkasso-deildinni á morgun, miðvikudag. Leikurinn hefst kl. 19:15 og fer fram á Hertzvellinum.
Skagastelpur eru í harðri baráttu í efri hluta deildarinnar og berjast um annað tveggja efstu sætanna. ÍR er í neðri hluta deildarinnar svo sigur er nauðsynlegur ef ÍA ætlar að halda í við efstu sætin og vera í baráttu um að komast upp í Pepsi-deildina.
Við hvetjum Skagamenn til að mæta í Breiðholtið á morgun og styðja stelpurnar til sigurs gegn ÍR.