ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Skagastelpur fá Hauka í heimsókn

Skagastelpur fá Hauka í heimsókn

19/07/18

#2D2D33

Meistaraflokkur kvenna tekur á móti Haukum í Inkasso-deildinni á morgun, föstudag. Leikurinn hefst kl. 19:15 og fer fram á Norðurálsvellinum.

Skagastelpur eru í harðri baráttu í efri hluta deildarinnar og berjast um annað tveggja efstu sætanna. Haukar eru í svipaðri stöðu í deildinni svo ef ÍA ætlar að halda í við efstu sætin og vera í baráttu um að komast upp í Pepsi-deildina eru þrjú stig nauðsynleg.

Við hvetjum Skagamenn til að mæta á völlinn á morgun og styðja stelpurnar til sigurs gegn Haukum.

Edit Content
Edit Content
Edit Content