Meistaraflokkur karla fer og heimsækir Víking Ólafsvík í Inkasso-deildinni á morgun, föstudag. Leikurinn fer fram á hinum nýja og glæsilega Ólafsvíkurvelli og hefst kl. 19:15.
Skagamenn eru í harðri baráttu við Víkinga um að komast í Pepsi-deildina á nýjan leik og því er um mikilvægan leik að ræða og þrjú stig væru vel þegin.
Við hvetjum Skagamenn til að gera sér ferð vestur á nes og styðja strákana til sigurs gegn Víkingum.