Meistaraflokkur karla heimsækir Njarðvík í 15. umferð Inkasso-deildarinnar á morgun, miðvikudag. Leikurinn fer fram á Njarðtaksvellinum og hefst kl. 19:15.
Skagamenn eru í mikilli toppbaráttu um að komast í Pepsi-deildina á nýjan leik en Njarðvíkingar eru í harð fallbaráttu í deildinni. Því eru þrjú stig mikilvæg svo ÍA geti haldið áfram baráttu sinni um að komast í Pepsi-deildina.
Við hvetjum Skagamenn til að mæta í Reykjanesbæ og styðja strákana til sigurs gegn Njarðvík.