Meistaraflokkur karla fær Þór í heimsókn í 13. umferð Inkasso-deildarinnar á morgun, föstudag. Leikurinn fer fram á Norðurálsvelli og hefst kl. 18:00.
Skagamenn eru í harðri baráttu um að komast í Pepsi-deildina á nýjan leik en Þórsarar eru á toppi deildarinnar. Því er um hreinan sex stiga leik að ræða og sigur er nauðsynlegur svo ÍA geti haldið áfram í toppbaráttunni.
Við hvetjum Skagamenn til að mæta á völlinn og styðja strákana til sigurs gegn Þórsurum.