Meistaraflokkur karla fær Selfoss í heimsókn í tíundu umferð Inkasso-deildarinnar á morgun, fimmtudag. Leikurinn fer fram á Norðurálsvelli og hefst kl. 19:15.
Skagamenn eru í harðri baráttu um að komast í Pepsi-deildina á nýjan leik en á sama tíma eru Selfyssingar að berjast í neðri hluta deildarinnar. Því er um mikilvægan leik að ræða fyrir bæði lið og ljóst að ekkert má gefa eftir.
Við hvetjum Skagamenn til að mæta á völlinn og styðja strákana til sigurs gegn Selfyssingum.