ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Samið við unga og efnilega leikmenn

Samið við unga og efnilega leikmenn

23/11/17

#2D2D33

Fyrr í dag var gengið frá samningum út árið 2019 við þrjá unga og efnilega leikmenn, þá Oskar Wasilewski, Sigurð Hrannar Þorsteinsson og Þór Llorens Þórðarson. Þeir hafa allir leikið með yngri flokkum ÍA og einnig þegar fengið sínar fyrstu æfingar og leiki með meistaraflokki.

Oskar hefur leikið 101 leik sem skráðir eru hjá KSÍ í 2. -4. flokki en á einnig að baki 4 landsleiki með U18 ára liðinu.

Sigurður Hrannar á 129 skráða leiki í 2. -4. flokki, hann hefur ekki enn leikið landsleik en hefur þó verið valinn í æfingahópa U18 liðsins.

Þór Llorens hefur tekið þátt í 108 skráðum leikjum hjá KSÍ í 2.-4. flokki og hefur auk þess leikið 3 landsleiki með U17 liðinu.

Um er að ræða fyrstu samninga leikmannana, sem allir urðu 17 ára á þessu ári, og er í samræmi við stefnu félagsins sem hefur það að leiðarljósi að gefa ungum og efnilegum leikmönnum tækifæri.

Við óskum strákunum innilega til hamingju og treystum því að þessir strákar eigi eftir að gera það gott í fótboltanum í framtíðinni.

Áfram ÍA

Edit Content
Edit Content
Edit Content