Ragnar Leósson skrifaði undir tveggja ára samning í dag við Knattspyrnufélag ÍA. Hann kemur heim aftur eftir sex ára fjarveru, en hann hefur á tímabilinu spilað með ÍBV, Fjölni, HK og Leikni R.
Samkvæmt KSI hefur hann spilað 185 meistaraflokks leiki og skorað í þeim 27 mörk. Hann er kærkomin viðbót við okkar öfluga hóp fyrir sumarið.
“Ég er bara ánægður með að vera kominn heim, spennandi tímar framundan að gerast á Skaganum og ég hlakka til að vera með!” sagði Ragnar Leósson.
“Mér líst mjög vel á Ragnar, hann er skagamaður í húð og hár, vinnusamur og öflugur miðjumaður sem kemur með gæði inní liðið, hann er vel spilandi á boltann auk þess sem þessi strákur er frábær innan vallar sem utan og er styrkur fyrir okkar lið.” Sagði Jóhannes Karl þjálfari Skagamanna.