ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

RÁÐSTEFNAN: KONUR OG ÍÞRÓTTIR, FORYSTA OG FRAMTÍÐ

RÁÐSTEFNAN: KONUR OG ÍÞRÓTTIR, FORYSTA OG FRAMTÍÐ

01/03/24

430744001_794357076057390_6083929710957946800_n

Í tilefni af Alþjóðlegum baráttudegi kvenna þann 8. mars næstkomandi standa Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) fyrir ráðstefnunni Konur og íþróttir, forysta og framtíð.

Á ráðstefnunni eru konur í fyrsta sæti. Konur í stjórnum félaga, konur í dómgæslu og konur í þjálfun. Rætt verður um helstu áskoranir sem konur í íþróttum standa frammi fyrir og þau tækifæri sem þeim bjóðast. Við ræðum um mikilvægi þess að konur séu áberandi í forystu í íþróttahreyfingunni.  Á það við um þátttöku í stjórnum íþróttafélaga, í ráðum og nefndum, dómgæslu eða þjálfun á afreksstigi.

Ráðstefnan fer fram á Fosshóteli, Þórunnartúni 1 á milli klukkan 09:00 – 12:30.  

Aðgangur er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá á viðburðinn og er skráningin opin til 6. mars.  

Skráðu þig hér á ráðstefnuna.

Fyrir þau sem ekki komast, verður streymt frá ráðstefnunni.

DAGSKRÁ:

Setning ráðstefnunnar
Þórey Edda Elísdóttir, fyrsti varaforseti ÍSÍ. 

Eru einhverjar áskoranir kvenna í forystu íþrótta?
Viðar Halldórsson félagsfræðingur

Ferðalagið innan knattspyrnuheimsins
Klara Bjartmarz, fráfarandi framkvæmdastjóri KSÍ

Tækifæri til að hafa áhrif
Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands Íslands

Pallborðsumræður

Að fóta sig í karllægum heimi
Bríet Bjarnadóttir, alþjóðlegur knattspyrnudómari

Segðu já!
Erna Héðinsdóttir, dæmir á ÓL í París í lyftingum

Mikilvægi dómgæslu í íþróttum
Hlín Bjarnadóttir, dæmir á Ól í áhaldafimleikum

Að breyta leiknum
Hulda Mýrdal

Hvað borðið þið eiginlega?
Díana Guðjónsdóttir handboltaþjálfari

Að þjálfa konur vs karla, er einhver munur?
Gunnar Páll Jóakimsson frjálsíþróttaþjálfari

Hagsmunasamtök kvenna í knattspyrnu (HKK)
Lára Hafliðadóttir situr í stjórn HKK

Hvað gerum við nú – stutt rafræn samantekt

Áfram veginn!
Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ


Boðið verður upp á morgunhressingu og er viðburðurinn opinn öllum. 

Nánari upplýsingar um viðburðinn á Facebook: Konur & íþróttir – forysta og framtíð | Facebook

ÍSÍ og UMFÍ hvetja öll kyn til að mæta og láta sig varða um málefnið!

*Texti tekinn af heimasíðu UMFÍ.

Edit Content
Edit Content
Edit Content