Nú standa yfir Reykjavík International Games þar sem keppt er í ýmsum íþrótta greinum þ.m.t keilu.
Keilufélag Akranes á nokkra fulltrúa á mótinu sem hafa staðið sig mjög vel.
Skúli Sigurðsson þar fremstur í flokki en hann er í fyrsta sæti eftir tvær umferðir.
Kristján þórðarson er í fimmta sæti og aðrir skagamenn eru þar á eftir, Staðan eftir tvær umferðir má sjá hér.
Mótinu líkur á sunnudag og verður sýnt beint frá úrslitum á http://www.sporttv.is en útsendingin byrjar um kl. 16.