Hið árlega Páskatölt Dreyra verður haldið í Æðarodda laugardaginn 26. mars n.k.
Keppt verður í T3 í eftirfarandi flokkum
Fyrsta flokki, öðrum flokki, ungmennaflokki, unglingaflokki og barnaflokki ef næg þátttaka fæst.
Skráningin fer fram í sportfeng fyrir kl. 24:00 fimmtudaginn 24. mars.
Skráningargjald í fullorðinsflokki og ungmennaflokk er 2500. en 1500.- fyrir börn og unglinga. Senda staðfestingu á netfangið motanefnddreyra@gmail.com
Timasetning og ráslisti verða gefnir út á föstudaginn 25. mars.
Þetta er löglegt útimót (3 dómarar)
Kaffiveitingar á staðnum
Hlökkum til að sjá ykkur
Mótanefnd Dreyra.
kv Belinda Ottósdóttir fyrir hönd móta nefnd Dreyra.