ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Opnum þreksal á ný 15. ágúst

Opnum þreksal á ný 15. ágúst

12/08/20

plakat_gultoghvitt

Heilbrigðisráðherra gaf út nýja auglýsingu í dag 12. ágúst sem tekur gildi þann 14. n.k. Ákveðið hefur verið í framhaldi af þeirri auglýsingu að opna þreksal á Jaðarsbökkum aftur laugardaginn 15. ágúst samkvæmt almennt auglýstum opnunartíma. Ráðstafanir hafa verið gerðar til þess að auka sóttvarnir, samt sem áður taka allir ábyrgð á sjálfum sér og sótthreinsa eftir sig og halda tveggja metra reglu.

Með samvinnu allra og virðingu á umgegnisreglum tekst okkur að komast í gegnum þetta og vonum að ekki þurfi að grípa til lokanna aftur.

Fjölda­tak­mörk miðast áfram við 100 manns að há­marki. Eins og fram kem­ur í aug­lýs­ingu ráðherra.

Iðkendur eru beðnir að fara áfram eftir tilmælum starfsfólks íþróttamannvirkja.

Edit Content
Edit Content
Edit Content