ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Nýr framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Akraness

Nýr framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Akraness

17/07/20

#2D2D33

Guðmunda Ólafsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Akraness í stað Hildar Karenar Aðalsteinsdóttur sem hverfur til annarra starfa. Guðmunda kemur til starfa frá Íþróttafélagi Reykjavíkur þar sem hún var verkefnastjóri / framkvæmdastjóri tímabundið en áður starfaði hún sem fjármálastjóri hjá Iðnvélum og sem framkvæmdastjóri Next á Íslandi. Guðmunda hefur lokið MBA gráðu frá Háskóla Íslands á sviði nýsköpunar og stjórnunar.

Guðmunda þekkir vel til íþróttastarfs en hún hefur komið að íþróttastarfi á mörgum sviðum í hartnær tuttugu ár, setið í aðalstjórn KR, stýrt verkefni um eflingu kvennastarfs innan KR og stýrt vinnu við umsókn til ÍSÍ um fyrirmyndafélag. Lokaverkefni Guðmundu í MBA náminu var stefnumótun KR í heild fyrir árin 2019-2024.

Nýr framkvæmdastjóri tekur formlega til starfa 10. ágúst og um leið og stjórn ÍA þakkar Hildi Karen kærlega fyrir ómetanleg störf í þágu félagsins og óskar henni velfarnaðar á nýjum vettvangi, bjóðum við nýjan framkvæmdastjóra hjartanlega velkominn til starfa hjá ÍA.

Edit Content
Edit Content
Edit Content