Þessa dagana fer fram Íslandsmót einstaklinga með forgjöf í Egilshöll. Fjögur íslandsmet voru sett í mótinu í dag.
Matthías Leó Sigurðsson ÍA spilaði 4 leiki í dag og setti íslandsmet í einum, tveimur, þremur og fjórum leikjum. Leikir Matthíasar í dag voru 132, 196, 142 og 136. Íslandsmetin eru sett í 5. flokki en í þeim eru leikmenn 10 ára og yngri.
Metin eru:
1 leikur 196
2 leikir 328
3 leikir 470
4 leikir 606
Glæsilegur árangur hjá Matthíasi.