ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Lýðheilsugöngur á Akranesi

Lýðheilsugöngur á Akranesi

01/09/19

Akranes 3

Akraneskaupstaður og Íþróttabandalag Akranes í samstarfi við Ferðafélag Íslands endurtaka leikinn frá síðasta ári og bjóða upp á lýðheilsugöngur alla miðvikudaga í september. Frábærir sjálfboðaliðar leiða göngurnar og verður frítt í sund  fyrir göngugarpa að göngum loknum.  Börn skulu vera í fylgd með fullorðnum og gott er að hafa með sér vatn í brúsa.  Göngurnar hefjast alltaf kl. 18:00 og er tilgangur þeirra að hvetja fólk til útivistar og hreyfingar í góðum félagsskap og bæta þar með heilsu sína og lífsgæði. 

Miðvikudagur 4. september:  Skógarganga í Slögu, skógræktarsvæði Skógræktarfélags Akraness í Akrafjalli. Lagt af stað frá bílastæðinu við græna gáminn í Slögunni. Gangan um Slögu tekur um eina klukkustund þar sem spjallað verður um sögu skógræktar og möguleika hennar sem útivistarsvæði. Gönguna leiðir Katrín Leifsdóttir. 

Miðvikudagur 11september:  Strandganga.  Gangan hefst  kl. 18:00 við Leyni, nánar tiltekið  við listaverkið “Himnaríki” sem staðsett er rétt innan við Höfða. Gengið verður meðfram ströndinni að tjaldstæðinu við Kalmansvík. Einhverjir fróðleiksmolar gætu fylgt með á leiðinni. Gert er ráð fyrir að gangan taki um 1 1/2 -2 klukkustundir. Börn skulu vera í fylgd með fullorðnum. Gönguna leiða Anna Bjarnadóttir og Hallbera Jóhannesdóttir. 

Miðvikudagur 18. september: Rætur Akrafjalls og Reynisrétt.  Gangan hefst kl. 18:00 og verður gengið frá bílastæðinu við Akrafjall til suðurs með fjallinu og inn að Reynisrétt og til baka. Á leiðinni verða örnefni svæðisins skoðuð og saga fjallsins rædd, hvort sem hún tengist ísaldarjöklinum, útilegumönnum eða frekum tröllskessum. Létt ganga fyrir alla fjölskylduna og tekur hún um 1 ½ klst.  Gönguna leiðir Eydís Líndal Finnbogadóttir. 

Miðvikudagur 25. september: Vallanes í landi Hvítaness við Grunnafjörð. Upphaf göngu hjá Vallanesi kl. 18:00. Við mynni Grunnafjarðar er bærinn Hvítanes. Utan og neðan við Hvítanes eru skemmtilegar sandfjörur sem gaman er að ganga um. Grunnifjörður er friðlýstur og samþykktur sem Ramsar svæði. Mikið fuglalíf er þarna árið um kring. Genginn verður 3 – 4 km. hringur. Þetta er létt ganga við allra hæfi og tekur 1-1 ½ klst. Gönguna leiða Elís Þór Sigurðsson og Hjördís Hjartardóttir 

Munum að klæða okkur eftir veðri
Fjölmennum og höfum gaman! 

Nánari upplýsingar hér:http://lydheilsa.fi.is/ 

Edit Content
Edit Content
Edit Content